Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Boðhlaup Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 13:54

Í ár verður í fyrsta sinn í sögu Reykjavíkurmaraþons boðið uppá boðhlaup þar sem tveir til fjórir hlauparar geta skipt á milli sín heilu maraþoni. Hlaupin er sama leið og maraþonhlaupararnir hlaupa, byrjað og endað á sama stað.


Leiðin

Í boðhlaupinu er heilu maraþoni skipt upp í fjóra leggi. Þrjár skiptistöðvar eru á leiðinni, eftir 10 km, 20 km og 30 km. Skiptistöðvarnar eru staðsettar rétt á eftir millitímamottunum.

Leggur      Vegalengd       Upphaf Endir
1 10 km Lækjargata Við Seðlabankann   
2 10 km Við Seðlabankann    Í Laugardal
3 10 km Í Laugardal Í Skerjafirði
4 12,2 km Í Skerjafirði Lækjargata

Ef fjórir hlaupa saman þá hlaupa fyrstu þrír 10 km en síðasti hleypur 12,2 km. Í liði sem samanstendur af tveimur hlaupurum hleypur sá fyrsti 20 km en sá síðari 22,2 km. Hlauparar þurfa sjálfir að koma sér til og frá skiptistöðva.


Þátttakendur

Boðhlaupið getur hentað fjölbreyttum hópi fólks. Þeir sem hafa hlaupið hálft maraþon en treysta sér ekki í heilt maraþon geta t.d. hlaupið 30 km og fengið félaga til að hlaupa síðustu 12,2 km. Einnig getur boðhlaupið verið hentugt fyrir þá sem vilja hlaupa 10 km en langar að hlaupa aðra leið heldur en 10 km hlaupararnir fara. Þá getur fjölskylda maraþonhlaupara einnig sýnt sínum hlaupara stuðning með því að skiptast á að hlaupa við hlið hans og taka þátt í boðhlaupi um leið. Aldurstakmark í boðhlaupið er 12 ár.


Skráning


Skráning fer þannig fram að einn aðili skráir alla liðsmenn í einu og greiðir um leið eitt gjald. Skrá þarf hvaða hlaupari liðsins hleypur hvaða hluta leiðarinnar. Hvert lið borgar eitt gjald óháð fjölda hlaupara í liði. Sá sem skráir er liðsstjóri boðhlaupsliðsins og hefur aðgang að "mínum síðum" fyrir hönd liðsins. Á "mínum síðum" getur liðsstjórinn séð yfirlit yfir skráningu síns liðs og fylgst með áheitum sem skráð eru á liðið (sjá nánar undir hlaupið til góðs).


Hlaupnúmer


Boðhlaupsliðið fær fjögur eintök af sama númeri sem er númer liðsins. Óskað er eftir því að hver meðlimur skrifi nafn og helstu persónuupplýsingar aftan á sitt númer í öryggisskini. Auk þess fær boðhlaupsliðið eina tímatökuflögu, sjá nánari undir liðnum tímataka hér að neðan.


Breytingar á boðhlaupsliði

Ef einn eða fleiri liðsfélagar detta út af einhverjum ástæðum og treysta sér ekki til að hlaupa geta aðrir í liðinu bætt við sig legg. Ekki er heimilt að afhenda númer til annarra en þeirra sem skráðir voru í liðið í upphafi. Eins og í öðrum vegalengdum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka eru þátttökugjöld ekki endurgreidd. Ef 1-3 liðsmenn falla úr liðinu og þeir sem eftir standa treysta sér ekki til að hlaupa fjóra leggi er hægt að breyta þátttöku liðsmanna í 10 km hlaup gegn 500 króna breytingargjaldi á mann. Hægt er að gera þessa breytingu með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir miðvikudaginn 18.ágúst 2010 eða á skráningarhátíð daginn fyrir hlaup.


Tímataka


ChampionChip tímatökukerfið er notað til tímatöku í boðhlaupinu eins og í öðrum keppnisgreinum Reykjavíkurmaraþons. Hvert lið fær eina einnota flögu sem mælir tímann. Festa þarf flöguna við ökklann, ekki hærra en 40 cm frá jörðu. Tímatökutækin nema aðeins flögur sem eru 40 cm frá jörðu eða lægra og því dugir ekki að halda á flögunni í hendinni. Flagan er fest með frönskum rennilási sem fylgir með í keppnisgögnum (sjá mynd neðst). Á skiptistöðvunum þurfa hlauparar að láta þann sem skipt er við hafa flögu liðsins. Ef liðin nota ekki flöguna fæst enginn tími.


Verðlaun

Þrjár fyrstu boðhlaupssveitir fá verðlaun út frá samanlögðum tíma. Allir hlauparar í boðhlaupinu fá þátttökuverðlaun. Þátttökuverðlaun eru afhent í við lok hvers leggjar.


Hlaupið til góðs


Allir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 geta hlaupið til styrktar góðu málefni. Bæði verður hægt að heita á lið í boðhlaupinu og einstaklinga í öðrum vegalengdum. Liðsstjóri hvers boðhlaupsliðs getur fylgst með áheitum sem berast á hans lið inni á "mínum síðum" og sent vinum og vandamönnum áskorun um að heita á sitt lið. Skráning góðgerðarfélaga hefst í lok febrúar og ættu boðhlaupslið að geta boðhlaupsliðin í kjölfarið merkt sig ákveðnu félagi. Nánar um góðgerðamál í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka má nálgast með því að smella hér.


Skráningargögn


Einn úr hverju boðhlaupsliði þarf að sækja skráningargögn fyrir sitt lið á skráningarhátíð daginn fyrir hlaup.


Eins og í öðrum keppnisgreinum Reykjavíkurmaraþons hækkar þátttökugjaldið eftir því sem nær dregur hlaupi og því borgar sig að skrá í tíma. Innifalið í þátttökugjaldinu er það sama og í öðrum vegalengdum þ.e. bolur, sundferð, pastaveisla, þjónusta á leiðinni o.fl.

Sendu okkur póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þig vantar nánari upplýsingar um boðhlaupið.

Festing fyrir flögu boðhlaupsliða

Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.

 
Borði
Borði
Borði