|
Lagt er af stað frá Reykjavík frá Skautahöllinni í Laugardal kl. 4:30 að morgni hlaupadags og ekið í Landmannalaugar með stuttu stoppi á leiðinni í Þjónustumiðstöðinni Hrauneyjum. Ferðin tekur um þrjár og hálfa klukkustund.
Hlaupið hefst við skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum, laugardaginn 14.júlí 2012 kl. 09:00 og lýkur í Húsadal í Þórsmörk.
Af öryggisástæðum þurfa allir þátttakendur að skrá sig hjá hlaupstjóra við upphaf hlaupsins í Landmannalaugum og við skála FÍ í Álftavatni. Hlaupið er svo ræst í nokkrum hópum með nokkurra mínútna millibili. Litur á þátttökunúmerum segir til um hvaða hópi hver tilheyrir. Þetta er gert vegna þrengsla í upphafi hlaups og til að varna því að tíminn líði án þess að hlauparar komist af stað. Sjá nánar í reglum hlaupsins.
Áætluð dagskrá hlaupdags laugardaginn 14.júlí 2012
| 04:30 |
Rútur leggja af stað úr Laugardal. Þáttakendum er skipt í rútur eftir hópum og fer rúta með gula hóp fyrst af stað, þá rauða og loks græna. |
| 06:45 |
Morgunverðarstopp í Hrauneyjum í 30 mínútur |
| 08:30 |
Áætluð koma í Landmannalaugar |
Landmannalaugar skrásetning: Allir hlauparar þurfa að skrá sig
| 08:50 |
Uppröðun í ráshópa |
| 09:00 |
Gulur hópur ræstur |
| 09:05 |
Rauður hópur ræstur |
| 09:10 |
Grænn hópur ræstur |
Álftavatn skrásetning: Allir hlauparar skrá sig að nýju við Álftavatn.
Tímatakmörk við 4 klst við Álftavatn.
Tímatakmörk við 6 klst í Emstruskála.
Húsadalur:
Þau sem fara með rútu til Reykjavík þurfa að ná í miða í „upplýsingum“ í aðalhúsi.
| 13:30 |
Fyrsti karlhlaupari væntanlegur |
| 14:30 |
Fyrsti kvenhlaupari væntanlegur |
| 17:30 |
Verðlaunaafhending |
| 18:00 |
Áætlað að fyrsta rúta fari af stað |
| 20:00 |
Áætlun síðustu rútu |
|