Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Latabæjarhlaupið 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst


Als voru 3071 barn skráð til þátttöku í Latabæjarhlaupinu 2010. Veðrið lék við börn og foreldra sem hlupu tvær mismunandi langar vegalengdir í nágrenni Hljómskálagarðsins. Börnunum var skipt í fimm hópa eftir aldri svo að allir fengju nóg rými til að hlaupa. Skipulagið gekk vel og var almenn ánægja með hlaupið hjá börnum og foreldrum. Eftir hlaup brugðu helstu hetjur Latabæjar á leik og skemmtu börnunum og reyndar foreldrum líka.


SMELLIÐ HÉR til að skoða myndir frá Latabæjarhlaupinu 2010.

 

 

Latabæjarhlaupið er ætlað börnum 8 ára og yngri en foreldrar og forráðamenn geta hlaupið með börnunum. Að þessu sinni fer hlaupið fram í Hljómskálagarðinum.


Netskráningu í hlaupið er nú lokið. Hægt verður að skrá börn í hlaupið á skráningarhátíð 20.ágúst kl.10-19 (sjá neðar) og í Hljómskálagarðinum á hlaupdag (21.ágúst) frá kl. 12:30.


Aldursskipting

Hlaupinu er skipt í fimm aldurshópa og gert er ráð fyrir að börn 6 ára og yngri hafi með sér einn fylgdarmann.


GRÆNA
 leiðin er fyrir þriggja ára og yngri - barnið hleypur 700 metra

RAUÐA leiðin er fyrir fjögurra ára börn - barnið hleypur 700 metrar

GULA leiðin er fyrir fimm ára börn - barnið hleypur 700 metrar

APPELSÍNUGULA leiðin er fyrir sex ára - barnið hleypur 1,5 km

BLÁA leiðin er fyrir sjö til átta ára - barnið hleypur 1,5 km


Öllum þeim sem eru með kerrur og vagna meðferðis er ætlað að fara aftast. Einungis er leyfilegt að vera með kerrur og vagna á grænu leiðinni. Systkini geta hlaupið saman en þá verða þau eldri að hlaupa í flokki þeirra yngri. Þetta er gert til að auðvelda framkvæmdina á sjálfu hlaupinu þannig að börnin hafi meira svigrúm til að hlaupa.


Í Latabæjarhlaupinu 2009 var börnunum skipt í þrjá ráshópa eftir aldri. Yngsti aldurshópurinn var of fjölmennur til að allir gætu notið þess nógu vel að hlaupa. Í ár hefur ráshópum því verið fjölgað í fimm og ættu yngstu börnin nú að geta sprett úr spori.


Þátttökugjald

Þátttökugjald er það sama og undanfarin ár, kr. 800, ef skráð er fyrir 1. júlí. Eftir 1. júlí hækkar þátttökugjaldið í 1.000 kr.

Innifalið í þátttökugjaldinu er m.a. Latabæjarbolur sem verður afhentur með skráningargögnum föstudaginn 20. ágúst milli 10 og 19 í félagshúsi Ármanns og Þróttar við Gervigrasið í Laugardal (Engjavegur 7).

Öll börn fá spjald með skráningargögnum til að festa framan á bolinn sinn með nælum. Litur spjaldsins segir til um hvaða línu barnið hleypur (fer eftir aldri). Börnin geta skrifað nafnið sitt, uppáhaldsnúmerið eða teiknað mynd á spjaldið.

Allir þátttakendur verða að klæðast Latabæjarbol til að fá verðlaunapening að hlaupi loknu. Foreldrar sem fylgja börnum í Latabæjarhlaupinu eru ekki skráðir og þurfa ekki að greiða þátttökugjald.

Veittur er fjölskylduafsláttur ef foreldri/forráðamaður hleypur í Reykjavíkurmaraþoni og tvö eða fleiri börn. Sjá nánar í verðskrá Reykjavíkurmaraþons.

SMELLTU HÉR til að skrá barnið.


Skráningarhátíð

Föstudaginn 20.ágúst verður skráningarhátið Latabæjarhlaupsins að Engjavegi 7 í félagshúsi Ármanns og Þróttar við Gervigrasið í Laugardal (á móti Laugardalshöll). Á skráningarhátíðinni geta forskráðir þátttakendur nálgast skráningargögn sín og þeir sem eiga eftir að skrá sig geta einnig gert það á staðnum. Skráningarhátíðin er frá kl. 10-19 en frá 15 verður sérstök íþróttadagskrá fyrir börnin. Þar verður hægt að spreyta sig í ýmsum íþróttum meðal annars hoppá á trampólíni og skjóta á mark.


Fjölmenni

Rúmlega 4000 börn og fylgdarfólk þeirra tóku þátt í Latabæjarhlaupinu 2009.

Til að fyrirbyggja að börn og foreldrar verði viðskila í þessu mikla fjölmenni eru foreldrar beðnir að merkja armband barna sinna (sem allir þátttakendur fá úthlutað með skráningargögnum) og ákveða með þeim stefnumótastað.

Bílastæði eru við Háskóla Íslands og þaðan er auðvelt að komast yfir í Hljómskálagarðinn á göngubrú við Njarðargötu. Svo er líka tilvalið að taka strætó.


Dagskrá

Upphitun við rásmark 5 mínútum fyrir hvert hlaup


Kl. 13:30 – Gul leið (5 ára) – ræst í 700 m hlaup

kl. 13:30 – Blá leið (7 til 8 ára) – ræst í 1,5 km hlaup

kl. 13:40 – Rauð leið (4 ára) – ræst í 700 m hlaup

kl. 13:50 – Græn leið (0-3 ára) – ræst í 700 m hlaup

kl. 13:50 – Appelsínugul leið (6 ára) – ræst í 1,5 km hlaup

kl. 14:15 – Að loknu hlaupi verður skemmtidagskrá í suðurenda Hljómskálagarðsins




Smellið hér til að skoða stærra og nákvæmara kort (pdf skjal).

 
Borði
Borði
Borði