Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Reglur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Eftirfarandi reglur gilda fyrir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka

  1. Þátttakendur skulu hefja hlaupið á auglýstum tíma. Tímatökukerfið er eingöngu virkt á þeim tíma.
  2. Tímatöku lýkur sex tímum eftir að fyrsta vegalengd er ræst. Þeir sem koma í mark eftir sex klukkustundir fá ekki skráðan tíma.
  3. Hlaupnúmerið á að vera sýnilegt allan tímann á meðan hlaupinu stendur. Reykjavíkurmaraþon áskilur sér rétt til að vísa þeim sem ekki hafa númer af braut eða af marksvæði.
  4. Tímatökuflaga verður að vera fest á skóinn hjá hlaupurum í tímatökuvegalengdum -  „engin flaga enginn tími“.
  5. Hlaupnúmer og tímatökuflaga eru skráð á ákveðinn þátttakanda og gildir eingöngu fyrir þann einstakling. Frávik frá því ógildir tímatöku.
  6. Ekki er hægt að skipta um vegalengd á hlaupdegi. Sá sem hleypur aðra vegalengd en skráning segir til um er ekki inn í tímatöku hlaupsins og ekki gildur þátttakandi.
  7. Aldurstakmörk eru í vegalengdir Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. 42,2 km maraþon er fyrir 18 ára og eldri og 21,1 km hálfmaraþon er fyrir fimmtán ára. 10 km hlaup er ætlað fyrir 12 ára og eldri og ekki er æskilegt að yngri börn hlaupi. Fólk á öllum aldri getur skráð sig í 3 km skemmtiskokk en börn á aldrinum 0-8 ára geta tekið þátt í Latabæjarhlaupinu. Börn eru á ábyrgð foreldra.
  8. Að minnsta kosti tveir og ekki fleiri en fjórir geta skráð sig í boðhlaup sem er 42,2 km. Aldurstakmark í boðhlaupið er 12 ár. Skrá þarf hvaða hluta af leiðinni hver þátttakandi hleypur. Aðeins er hægt að skipta um hlaupara á ákveðnum skiptistöðvum sem eru eftir 10 km, 20 km og 30 km.
  9. Sá eða sú sem hættir hlaupi verður að láta starfsmann hlaupsins vita af því.
  10. Hlaupabrautin er eingöngu ætluð keppendum. Ekki er heimilt að fylgja hlaupurum gangandi, hlaupandi, á hjóli eða öðrum farartækjum. Það er á ábyrgð þátttakenda að vísa frá þeim sem vilja fylgja.
  11. Þátttakendum er ekki heimilt að hafa meðferðis hunda eða önnur gæludýr.
  12. Þátttakendum í 10 km - 21,1 km - 42,2 km er ekki heimilt að hafa meðferðis kerrur eða vagna. Undanþágu hafa keppendur sem taka þátt í góðgerðamálum og aðstoða þá sem eru bundnir við hjólastól.
  13. Þau sem vilja taka þátt í hlaupinu gangandi með stafgöngustafi verða að vera aftast í upphafi hlaups.
  14. Allir þátttakendur eru beðnir að kynna sér skipulag á marksvæði. Þeir eru góðfúslega beðnir um að fara eftir þeim útgönguleiðum sem skipulagðar hafa verið og virða tilmæli starfsmanna.
  15. Vinsamlegast sýnið öllum starfsmönnum hlaupsins kurteisi og farið eftir leiðbeiningum og fyrirmælum þeirra. 
  16. Brot á ofangreindum reglum ógilda þátttökurétt í hlaupinu.  

Öllum ábendingum sem þátttakendur vilja koma á framfæri er hægt að koma til skila á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .


     

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði