Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Samstarfsaðilar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 04. febrúar 2009 13:34

Samstarfsaðilar Reykjavíkurmaraþons eru eftirtaldir:

Íslandsbanki hefur verið samstarfsaðili Reykjavíkurmaraþons um árabil. Síðastliðin ár hefur Reykjavíkurmaraþonið borið nafn bankans og heitir nú Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.

Reykjavíkurborg og Reykjavíkurmaraþon hafa átt gott samstarf frá fyrsta hlaupi 1984. Reykjavíkurborg býður öllum þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í sund.

 

Ferðaskrifstofan VITA var stofnuð í júní 2008 og er rekin af Iceland Travel. Helsta markmið ferðaskrifstofunnar er að bjóða upp á fjölbreytt úrval skipulagðra afþreyingaferða í leiguflugi frá Íslandi til útlanda. Iceland Travel er leiðandi ferðaskrifstofa í móttöku erlendra ferðamanna hér á landi og heldur utan um hótelbókanir o.fl. fyrir erlenda þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu.

Powerade hefur verið drykkur Reykjavíkurmaraþons um nokurra ára skeið. Drykkurinn er í boði fyrir keppendur á öllum drykkjarstöðvum sem og í endamarki hlaupsins í Lækjargötu.

 

Það í mörgu að snúast þegar halda á viðburð eins og Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Því er mikilvægt að hafa aðgang að traustum og góðum bílum eins og Suzuki. 

Asics býr að meira en hálfrar aldrar reynslu í þróun skófatnaðar auk þess sem fyrirtækin framleiðir góðan hlaupafatnað. Útdráttarverðlaun frá Asics eru dregin út á marksvæðinu í Lækjargötu.

 

Öllum þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni er boðið í Barilla pastaveislu föstudaginn 20.ágúst 2010. Barilla pasta hefur verið notað í pastaveislur Reykjavíkurmaraþons frá upphafi.

Allir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fá stuttermabol þegar þeir sækja keppnisgögn sín í Laugardalshöll. Margt smátt hefur útvegað og merkt alla boli fyrir Reykjavíkurmaraþon um margra ára skeið.

 
Borði
Borði
Borði