| Skipulag |
|
|
|
|
Hafir þú hugsað þér að taka þátt í Laugavegshlaupinu er mjög mikilvægt að þú lesir hér allar ábendingar um undirbúning og skipulag vel og vandlega.
Farangur sem þátttakendur vilja eiga aðgang að loknu hlaupi í Þósmörk er tekinn með í rútuna í Landmannalaugar með brottför frá Reykjavík kl 04:30 hlaupdag þann 14.júlí. Í Landmannalaugum þarf hver og einn að setja farangur sinn í rútu sem ekur til Þórsmerkur. Mikilvægt er að hafa meðferðis hlý og þurr föt og við minnum á baðföt og handklæði. Farangur úr Landmannalaugum verður geymdur í tjöldum á marksvæði í Húsadal við komu hlaupara í Þórsmörk. Hlauparar eru beðnir að stilla farangri í hóf og merkja hann vel en engin ábyrgð er tekin á verðmætum í farangri. Þátttakendur geta skilið eftir tösku við afhendingu gagna á föstudegi 13.júlí í Skautahöllinni í Laugardal. Í töskunni geta t.d. verið skór, fatnaður og t.d.orka. Alls ekki gler eða gosdósir. Þessum farangri verður þá komið fyrir á syðri árbakka Bláfjallakvíslar. Þannig gefst kostur á að skipta um föt og skó á miðri leið og skilja eftir aukafatnað. Stærð og umfang farangurs eru takmörk sett og er miðað við töskur að stærð 50x30 cm og að sjálfsögðu vel merktar. Til þess að eiga ekki á hættu að fá afhendann blautan farangur er betra að töskur séu vatnsheldar eða innihaldi pakkað í plastpoka. Ekki er tekið við plastpokum sem farangri. Við vekjum athygli á að flutningur á þessum farangri fer fram upp á hálendinu með hjálpasveitabíl og kerru, í hvaða veðri sem verða vill og farangur liggur úti undir berum himni. Það er því betra að farangur þoli veður og vind og komist allur fyrir í bílnum. Auk þess eiga engin verðmæti að vera meðferðis eða neitt það sem þátttakendur þurf að nota í lok hlaups. ÞESSI FARANGUR KEMUR EKKI Á MARKSVÆÐI Í HÚSADAL. Að hlaupinu loknu verða töskurnar fluttar til Reykjavíkur og eru þátttakendur vinsamlegast beðnir að sækja þær í Skautahöllina í Laugardal á laugardagskvöld um leið og rútur koma úr Húsadal eða á sunnudagsmorgun 15.júlí frá kl 10-13. Mánudaginn 16.júlí kl.9-13 verður einnig hægt að sækja töskur og er það síðasti frestur til að sækja farangurinn. Ósóttum farangri verður hent eftir þann tíma.
Farangur 2 - Eftir hlaup: Farangur sem þátttakendur vilja eiga aðgang að loknu hlaupi í Þósmörk er tekinn með í rútuna í Landmannalaugar með brottför frá Reykjavík kl 04:30 hlaupdag þann 14.júlí. Í Landmannalaugum þarf hver og einn að setja farangur sinn í rútu sem ekur til Þórsmerkur. Mikilvægt er að hafa meðferðis hlý og þurr föt og við minnum á baðföt og handklæði. Farangur úr Landmannalaugum verður geymdur í tjöldum á marksvæði í Húsadal við komu hlaupara í Þórsmörk. Hlauparar eru beðnir að stilla farangri í hóf og merkja hann vel en engin ábyrgð er tekin á verðmætum í farangri.
Meðalhiti í júlí á Laugaveginum er um 7-8°C. Gera má ráð fyrir að brugðið geti til beggja vona með hitastig og veðurskilyrði. Af fenginni reynslu af veðri í Laugavegshlaupi er mikilvægt að vera vel búinn og fara að fyrirmælum hlaupstjóra varðandi klæðnað. Á 55 km leið í kulda og bleytu getur kæling orðið lífshættuleg. Fatnaður fer eftir því hvernig viðrar þegar hlaupið fer fram. Allir þátttakendur þurfa að vera viðbúnir því við upphaf hlaups að klæðast eða taka með sér auka fatnað í hlaupið, verði þess krafist af hlaupstjóra. Hér er um að ræða síðerma peysu, vindjakka, síðar buxur, vettlinga, húfu sem nær yfir eyru og skjól fyrir háls. Æskilegt er að hlaupaskór séu með grófum sóla og búið að hlaupa þá til þannig að ekki verði hætta á blöðrum. Vatnsvarðir skór eru taldir góðir en athugið þó að sumir þeirra halda vatni frekari inn (í skónum) frekar en úti. Lágar legghlífar eru góðar til að hindra að snjór og möl komist ofan í skóna. Þó að drykkjarstöðvar séu á leiðinni er nauðsynlegt að hver og einn hafi meðferðis drykkjarbrúsa í hvaða veðri sem er. Auk þess er mikilvægt að hafa meðferðis orkugel eða aðra næringu. Sérstök áhersla er lögð á að engu rusli sé hent á leiðinni, hvorki gelbréfum, bananahýðum, glösum, plásturumbúðum né neinu öðru, sé fleygt á víðavangi. Hlaupurum er skilt að taka með sér allt rusl og henda því á drykkjarstöðvum eða á marksvæði. Til þess að passa upp á þessa framkvæmd er öllum þátttakendum afhendur þar til gerður mittispoki undir rusl. Sjá nánar í reglum hlaupsins. Þátttakendur þurfa að ganga frá ýmsum málum við komuna í Landmannalaugar. Þeir þurfa að skrá sig hjá skráningastjóra hlaupsins sem verður fyrir framan skála Ferðafélags Íslands. Þeir sem koma með rútunni verða að ganga frá öllum farangri sínum og koma honum í rútuna sem fer til Þórsmerkur. Áður en það er gert er mikilvægt að taka mið af síðustu veðurupplýsingum og ráðleggingum frá hlaupstjóra varðandi útbúnað. Athugið að í Landmannlaugum er salernis aðstaða en ekki önnur aðstaða til að vera innandyra. Hlaupið verður ræst í nokkrum hópum með nokkurra mínútna millibili. Hlauparar verða að vera tilbúnir í réttum hóp og leggja af stað með þeim hópi.
Að hlaupinu loknu er allur farangur hlaupara kominn í Húsadal. Þar er honum komið fyrir í tjöldum þar sem konur og karlar eru á aðskildu svæði þar sem er hægt að fara í sturtu og heitan pott. Húsaskjól eða tjöld eru til staðar og kjötið fer á grillið um það leiti sem fyrstu hlauparar koma í mark. Í Húsadal er mikið um að vera og þangað eru allir velkomnir. Þar er rekin ferðaþjónusta alla daga yfir sumarið og þátttakendur og starfsmenn í Laugavegshlaupi eru viðbót við aðra gesti. Á vegum hlaupsins eru settar upp tjaldbúðir með borðum og stólum auk annarra tækja en allt er þetta er kostnaðarsöm þjónusta og hluti af þeirri umgjörð sem tilheyrir hlaupinu. ATH: Hlauparar eru beðnir að taka tillit til þess að tjaldbúðaraðstaðan er eingöngu ætluð þátttakendum í hlaupinu en ekki ættingjum og vinum og þetta á einnig við um allan mat sem er innifalinn í þátttökugjaldi hlaupsins. Brottför frá Þórsmörk verður á tímabilinu kl.17-20 og hafa þau sem luku fyrst hlaupi aðgang að fyrstu rútum heim ef þau hafa skráð sig og greitt fyrir rútu. Þegar hlaupi er lokið þarf að staðfesta rútuferð við starfsmann hlaupsins í Húsadal sem hefur umsjón með rútuferðum. Smellið hér til að fá nánari upplýsingar.
|













