|
Eftirfarandi eru upplýsingar um þá þjónustu sem veitt er í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.

Fatageymsla Upplýsingamiðstöð á hlaupdegi verður í Menntaskólanum í Reykjavík (MR). Þar geta keppendur komið fatnaði og öðru dóti fyrir í geymslu. Starfsmenn vakta geymsluna en þó er engin ábyrgð tekin á fjármunum sem þar eru geymdir.
Óskilamunir Farið verður með alla óskilamuni í upplýsingamiðstöðina í MR á hlaupdegi. Eftir hlaupið verður hægt að nálgast óskilamuni á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons á Engjavegi 6, 104 Reykjavík. Símanúmerið á skrifstofunni er 535 3700.
Sjúkragæsla Læknar og hjúkrunarlið er til reiðu meðan á hlaupinu stendur og til aðstoðar þegar hlauparar koma í mark. Félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykjavík veita aðstoð á hlaupaleiðinni.
Salerni Færanleg salerni eru aðgengileg eftir 5km, 12km, 18km, 25km, 30km og 35km. Einnig eru færanleg salerni á bílastæði við MR í Lækjargötu.
Drykkjarstöðvar Á um það bil fimm kílómetra fresti kemur þú að drykkjarstöð. Þar er boðið upp á Powerade íþróttadrykk og vatn. Keppendum í maraþoni er einnig boðið upp á banana á drykkjarstöðvum á seinni helming leiðarinnar. Í Lækjargötu, við endamarkið, er einnig drykkjarstöð fyrir allar vegalengdir. Smellið hér til að skoða staðsetningar drykkjarstöðva á leiðinni.
Hlaupaleiðin Gul strik og merki með örvum vísa keppendum leiðina. Fjöldi hlaupinna kílómetra má sjá reglulega á skiltum eða appelsínugulum keilum. Því miður er leiðin ekki algerlega lokuð fyrir akandi umferð og því eru hlauparar beðnir að fara varlega. Smellið hér til að skoða kort af hlaupaleiðum.
|