Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Vegalengdir 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 07. desember 2009 09:20

Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer þann 21.ágúst 2010 verður boðið uppá sex vegalengdir. Athugið að aldurstakmark er í lengri vegalengdirnar. Ekki er mælt með því að yngri en 12 ára taki þátt í 10 km hlaupinu.

42,2 km maraþon Átján ára og eldri
21,1 km hálfmaraþon       Fimmtán ára og eldri
10 km hlaup

Ætlað fyrir 12 ára og eldri 
- ekki er æskilegt að yngri börn taki þátt

Boðhlaup (42,2 km) Tólf ára og eldri
3 km skemmtiskokk Fólk á öllum aldri
1 km Latabæjarhlaup Börn frá 0-8 ára

Boðið er uppá nýja keppnisgrein í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010, boðhlaup. Boðhlaupið er hlaupið á maraþonbrautinni og er því 42,2 km eins og maraþonið. Tveir til fjórir skipta á milli sín hlaupaleiðinni og verða skiptistöðvar eftir 10 km, 20 km og 30 km. Ef fjórir hlaupa saman hlaupa þrír hlauparar 10 km og einn 12,2 km. Smelltu hér til að skoða nánari upplýsingar um boðhlaupið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010.

 
Borði
Borði
Borði