|
Allir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fá verðlaunapening þegar þeir koma í mark. Fyrstu þrír karlar og konur í 10 km hlaupi, hálfmaraþoni og maraþoni fá einnig verðlaunagripi fyrir sinn árangur. Þá fá fyrstu þrjú lið í mark í 42,2 km boðhlaupinu einnig verðlaunagripi. Þessi verðlaun eru veitt í Lækjargötu á hlaupdegi.
Verðlaunafé Líkt og undanfarin ár eru veitt peningaverðlaun til fyrstu þriggja hlauparanna í heilu og hálfu maraþoni. Fyrstu þrír Íslendingarnir í þessum vegalengdum fá einnig peningaverðlaun.
| Vegalengd |
1.sæti |
2.sæti |
3.sæti |
| Heilt maraþon |
100.000 |
70.000 |
40.000 |
| Heilt maraþon - Íslendingar |
50.000 |
35.000 |
20.000 |
| Hálft maraþon |
70.000 |
40.000 |
20.000 |
| Hálft maraþon - Íslendingar |
40.000 |
25.000 |
15.000 |
Verðlaunafé er veitt fyrir fyrstu þrjá í kvenna- og karlaflokki. Allar upphæðir eru í íslenskum krónum. Verðlaunafé er samtals 1.050.000 kr.
Brautarmet Sé brautarmet slegið í maraþoni eða hálfmaraþoni er greiddur bónus, 50.000 kr. í hálfmaraþoni og 100.000 kr. í maraþoni. Þessi verðlaun verða veitt í Lækjargötu á hlaupdegi. Brautarmet í maraþoni karla á Ceslovas Kundrotas (LTU) 2:17:06 og maraþoni kvenna Angaharad Mair (GBR) 2:38:47. Benjamin Serem (KEN) á brautarmetið í hálfmaraþoni karla 1:04:09 en Martha Ernstdóttir (ISL) á brautarmet kvenna 1:11:40.
Powerade mótaröðin 10 km hlaupið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er hluti af Powerade mótaröðinni. Mótaröðin samanstendur af fimm hlaupum sem haldin hafa verið í Reykjavík í sumar. Reykjavíkurmaraþonið er síðasta hlaupið á mótaröðinni og þrír stigahæstu hlaupararnir fá afhend verðlaun í Lækjargötunni á hlaupdegi.
Útdráttarverðlaun Allir þátttakendur eiga möguleika á að vinna útdráttarverðlaun í boði Asics. Útdráttarverðlaun eru afhent keppendum þegar þeir koma í mark.
Sveitakeppni Verðlaun eru veitt fyrstu þremur sveitunum í vegalengdum 10 km, 21,1 km og 42,2 km. Þau sem eiga þrjá bestu tímana í sveitinni vinna til verðlauna. Sjá nánar um sveitakeppni hér. Verðlaun í sveitakeppni verða afhent á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons, Engjavegi 6 (við hliðina á Laugardalshöll), frá og með mánudegi 20.ágúst.
Aldursflokkar Aldursflokkaverðlaun verða afhent á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons, Engjavegi 6 (við hliðina á Laugardalshöll), frá og með mánudegi 20.ágúst. Þetta er gert til að tryggja að úrslit liggi örugglega rétt fyrir áður en verðlaunin eru afhent.

Veitt eru aldursflokkaverðlaun fyrir fyrsta til þriðja sæti í eftirfarandi flokkum karla og kvenna.
Í 10 km eru flokkarnir 12-15 ára 16-18 ára 19-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70 ára og eldri
Í 21,1 km eru flokkarnir 15-19 ára 20-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70 ára og eldri
Í heilu maraþoni eru flokkarnir 18-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70 ára og eldri
|