|
Miðvikudagur, 14. júlí 2010 00:52 |
|
Ármannshlaupið fór fram í blíðskaparveðri í Laugardalnum og nágrenni í kvöld. Keppt var á hraðri og skemmtilegri 10 km braut sem byrjaði og endaði við Laugaból, félagshús Ármanns og Þróttar í Laugardal. Als luku 225 hlaupinu í kvöld en 182 luku því árið 2009 þegar það var haldið í fyrsta sinn eftir margra ára hlé.
Sigurvegari í karlaflokki var Jósep Magnússon á tímanum 34:52. Í öðru sæti var Haraldur Tómas Hallgrímsson og í því þriðja Þórólfur Ingi Þórsson.
Í kvennaflokki sigraði Arndís Ýr Hafþórsdóttir á tímanum 38:29. María Kristín Gröndal varð í öðru sæti í kvennaflokki og Hrönn Guðmundsdóttir í þriðja sæti.
Smellið hér til að skoða úrslit úr Ármannshlaupinu 2010. Myndir frá hlaupinu eru væntanlegar á morgun á myndavef Frjálsíþróttadeildar Ármanns. |
|
|
Föstudagur, 09. júlí 2010 01:04 |
|
Björn Margeirsson hefur sigrað í fyrstu þremur hlaupunum á Powerademótaröðinni sumarið 2010 og er því með fullt hús stiga í stigakeppni mótaraðarinnar. Jósep Magnússon, sigurvegari mótaraðarinnar sumarið 2009, er í öðru sæti í stigakeppni karla og Tómas Zoega Geirsson í því þriðja.
Fríða Rún Þórðardóttir er einnig með nokkuð afgerandi forystu í kvennaflokki en hún hefur sigrað í tveimur hlaupum og verið í öðru sæti í einu. Hrönn Guðmundsdóttir er í öðru sæti í stigakeppni kvenna og María Kristín Gröndal í því þriðja.
Það verður spennandi að sjá hvort að þau Björn og Fríða Rún haldi uppteknum hætti í fjórða og næst síðasta hlaupi Powerademótaraðarinnar þetta sumarið, Ármannshlaupinu.
Smellið hér til að skoða stöðuna í stigakeppni Powerademótaraðarinnar sumarið 2010. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 12 |