| Metþátttaka í Olíshlaupi Fjölnis |
|
|
|
| Fimmtudagur, 21. maí 2009 21:27 |
|
Það var Íris Anna Skúladóttir úr Fjölni sem sigraði í kvennaflokki á sínum besta tíma eða 36,59 mínútum. Fyrra persónulega met hennar í 10 km götuhlaupi var 37,25 sem sett var í Gamlárshlaupi ÍR 2005. Í öðru sæti var Arndís Ýr Hafþórsdóttir á tímanum 38,22 og Sif Jónsdóttir í því þriðja á 44,00. Fjölnismaðurinn Jósep Magnússon sigraði í karlaflokki Olíshlaupsins á 35,23. Fast á hæla hans komu þeir Sigurður Hansen á 36,01 og Örn Gunnarsson á 46,47. Meðfylgjandi mynd er af sigurvegurum hlaupsins. Nánari úrslit má finna á hlaup.com. Þau Jósep Magnússon og Arndís Ýr Hafþórsdóttir eru með forystu á stigalista Powerade mótaraðarinnar eftir fyrstu tvö hlaupin af fimm. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um stigakeppni mótaraðarinnar. |








Olíshlaup Fjölnis fór fram í 21. sinn í Grafarvoginum í dag. Hlaupið er hluti af Powerade mótaröðinni og var það annað hlaupið í röðinni af fimm þetta sumarið. Metþátttaka var í 10 km hlaupinu eða tæplega 200 keppendur. Aðstæður voru frábærar enda með eindæmum gott veður.


