| Miðnæturhlaup í Laugardalnum |
|
|
|
| Fimmtudagur, 18. júní 2009 13:06 |
|
Þriðjudaginn 23.júní næstkomandi fer Miðnæturhlaup Powerade fram í Laugardalnum. Hlaupið er þriðja hlaupið af fimm á Powerade mótaröðinni. Miðnæturhlaup Powerade hefst kl. 22.00 á Sundlaugaveginum við hliðina á Laugardalslaug og endar á bílastæðinu fyrir framan sundlaugarnar. Boðið er uppá þrjár vegalengdir; 3 km skemmtiskokk, 5 km hlaup með tímatöku og 10 km hlaup með tímatöku. Skráning fer fram hér á marathon.is. Forskráning á vefnum er opin til miðnættis mánudaginn 22.júní. Einnig verður hægt að skrá sig í gamla anddyri Laugardalslaugar þriðjudaginn 23.júní kl. 18.00-21.30. Sigurvegarar í Miðnæturhlaupi Powerade og sigurvegarar í einstökum aldursflokkum fá verðlaun. Auk þess fá allir þátttakendur verðlaunapening, frítt í sund í Laugardalslaug og Powerade til að slökkva þorstann. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um hlaupið. Þau Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Jósep Magnússon eru með forystu í stigakeppni Powerade mótaraðarinnar. Tíu efstu hlauparar í hverju hlaupi mótaraðarinnar fá stig fyrir árangur sinn og hljóta sigurvegarar í stigakeppninni glæsileg verðlaun. Smellið hér til að skoða upplýsingar um stigakeppni Powerade mótaraðarinnar. |











