| Met forskráning í Miðnæturhlaupið |
|
|
|
| Þriðjudagur, 23. júní 2009 15:03 |
|
Forskráningu í Miðnæturhlaupið lauk á netinu á miðnætti í nótt. Aldrei hafa fleiri forskráð sig í hlaupið en það gerðu 709 í ár. Í fyrra tóku rúmlega 830 manns þátt í hlaupinu og þá voru um 300 forskráðir. Það stefnir því í góða þátttöku í ár. Í dag verður hægt að skrá sig í hlaupið í gamla anddyri Laugardalslaugarinnar frá kl. 18.00-21.30. Forskráðir þátttakendur geta nálgast hlaupnúmer sín á sama tíma. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um Miðnæturhlaup Powerade.
|








Miðnæturhlaup Powerade, sem er eitt hlaupanna á Powerade mótaröðinni. fer fram í Laugardalnum í kvöld. Hlaupið verður af stað kl. 22.00 frá Laugardalslaug. Eftir hlaupið er öllum þátttakendum boðið frítt í sund í Laugardalslaug.


