| Frábær þátttaka í Miðnæturhlaupinu |
|
|
|
| Miðvikudagur, 24. júní 2009 13:19 | ||||||||||||||||||
|
Miðnæturhlaup Powerade fór fram í Laugardalnum í gærkvöld í fínu veðri. Miðnætursólin lét sjá sig öðru hvoru og veður hélst þurrt á meðan hlaupið fór fram þrátt fyrir spár um annað. Skráning í hlaupið var framar björtustu vonum en alls tóku rúmlega 1300 hlauparar þátt. Í fyrra tóku um 830 þátt í hlaupinu og því um verulega fjölgun milli ára að ræða. Keppnisvegalengdir hlaupsins voru tvær, 5 og 10 km, en einnig var boðið uppá 3 km skemmtiskokk án tímatöku. Fyrstu hlauparar í mark voru eftirfarandi.
Smellið hér til að skoða nánari úrslit hlaupsins. Þeir sem ekki fengu þátttökuverðlaun en létu skrifa sig niður í gær, fá þau send í pósti fljótlega. Framkvæmdaraðilum hlaupsins þykir miður að hlauparar þurftu frá að hverfa eða gátu ekki hlaupið þá vegalengd sem þeir óskuðu sér. Gert var ráð fyrir töluverðri aukningu frá síðasta ári, en ekki eins mikilli og raunin varð. Því varð uppselt í 5 km og 10 km hlaupin og undir lokin kláruðust einnig öll númer í 3 km skemmtiskokkið. Við munum skoða framkvæmd hlaupsins og hvað við getum gert til þess að tryggja það að í næsta Miðnæturhlaupi, geti allir hlaupið þá vegalengd sem þeir óska eftir. |











