| Arndís og Sigurður með forystu |
|
|
|
| Sunnudagur, 28. júní 2009 23:14 |
|
Þegar þremur hlaupum af fimm er lokið á Powerade mótaröð sumarsins eru þau Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Sigurður Böðvar Hansen með forystu í stigakeppni mótaraðarinnar. Arndís Ýr sigraði í Miðnæturhlaupi Powerade á dögunum og í Víðavangshlaupi ÍR á Sumardaginn fyrsta. Þá varð hún í 2.sæti í Olíshlaupi Fjölnis í maí. Næst á eftir Arndísi í stigakeppni kvenna kemur Íris Anna Skúladóttir og þriðja er Margrét Elíasdóttir. Smellið hér til að skoða stigalista Powerade mótaraðarinnar í kvennaflokki. Forystusauðurinn í stigakeppni karla, Sigurður Böðvar, varð sjöundi í Víðavangshlaupi ÍR, annar í Olíshlaupi Fjölnis og sigraði í Miðnæturhlaupi Powerade. Fast á hæla Sigurðar í 2.sæti stigakeppninnar kemur Jósep Magnússon en í því þriðja er Birkir Marteinsson. Smellið hér til að skoða stigalista Powerade mótaraðarinnar í karlaflokki. Sigurvegarar á Powerade mótaröðinni hljóta glæsilega ferðavinninga frá Iceland Express. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um verðlaun á Powerade mótaröðinni. |











