| Ármannshlaupið á fimmtudag |
|
|
|
| Sunnudagur, 19. júlí 2009 17:45 |
|
Fjórða hlaupið á Powerade mótaröðinni, Ármannshlaupið, er á næsta leiti. Ármannshlaupið verður ræst við félagshús Ármanns og Þróttar, Laugaból í Laugardal, fimmtudaginn 23.júlí kl. 20.00. Boðið er uppá tvær vegalengdir í Ármannshlaupinu, 10 km hlaup með tímatöku og skemmtiskokk án tímatöku. Forskráning fer fram á hlaup.com og lýkur á miðnætti 22.júlí. Einnig verður hægt að skrá sig á hlaupdegi en þá hækkar verðið. Það er því um að gera að forskrá sig á netinu. Í Ármannshlaupinu er boðið uppá sveitakeppni í 10 km hlaupinu. Allir hlauparar fá viðurkenningu fyrir þátttökuna. Smellið hér til að finna nánari upplýsingar um Ármannshlaupið. Ármannshlaupið er næst síðasta hlaupið á Powerade mótaröðinni þetta sumarið. Eins og stendur er Arndís Ýr Hafþórsdóttir með forystu í stigakeppni kvenna á mótaröðinni en Sigurður Böðvar Hansen í stigakeppni karla. Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um stigakeppni Powerade mótaraðarinnar.
|












