Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Haraldur Tómas og Íris Anna sigruðu í Ármannshlaupinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 24. júlí 2009 23:42

Ármannshlaupið var endurvakið eftir nokkurra ára dvala og fór fram í Laugardalnum í gærkvöldi. Rúmlega 200 manns tóku þátt í 10 km hlaupi og skemmtiskokki.

Sigurvegari í karlaflokki var Haraldur Tómas Hallgrímsson úr FH á 34:42 en í kvennaflokki sigraði Íris Anna Skúladóttir úr Fjölni á 38:20.

Töluverður norðan vindur mæddi á hlaupurum á Sæbrautinni á annars skemmtilegri og hraðri braut hlaupsins.

Boðið var uppá sveitakeppni í 10 km hlaupinu þar sem sveit FH sigraði og hlaut að launum málsverð frá veitingahúsinu Lauga-Ás.

Sjá nánar um hlaupið á heimasíðu Ármanns armenningar.is og úrslit á hlaup.com.

Ármannshlaupið var fjórða og næst síðasta hlaupið á Powerade mótaröðinni þetta sumarið. Arndís Ýr Hafþórsdóttir er eins og áður með forystu í stigakeppni kvenna en Jósep Magnússon hefur náð forystunni af Sigurði Böðvari Hansen í stigakeppni karla. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um stigakeppni Powerade mótaraðarinnar. 

 
Borði
Borði
Borði
Borði