|
Mánudagur, 17. ágúst 2009 22:01 |
|
Síðasta hlaupið á Powerade mótaröðinni þetta sumarið, Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, fer fram í miðborginni laugardaginn 22.ágúst næstkomandi. Hægt er að velja um fimm vegalengdir; maraþon, hálft maraþon, 10 km hlaup með tímatöku, skemmtiskokk og Latabæjarhlaup. Það er 10 km hlaupið sem gildir til stiga á mótaröðinni. Forskráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka lýkur á miðnætti á miðvikudag. Eftir það verður hægt að skrá sig á skráningarhátíð í Laugardalshöll en þangað þurfa allir þátttakendur að koma til að sækja keppnisgögn sín.
Efstu þrír hlaupararnir í stigakeppni Powerade mótaraðarinnar fá afhent glæsileg verðlaun í Lækjargötunni á laugardaginn. Sigurvegararnir fá flugmiða frá Iceland Express og hlauparar í öðru og þriðja sæti fá Asics hlaupaskó. Einnig eiga allir sem tekið hafa þátt í hlaupum á Powerade mótaröðinni í sumar möguleika á að vinna skemmtilegt útdráttarverðlaun frá Powerade sem einnig verða afhent í Lækjargötunni.
Þau Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Sigurður Böðvar Hansen eru með forystu á Powerade mótaröðinni fyrir síðasta hlaupið. Smellið hér til að skoða nánar stöðuna í stigakeppni mótaraðarinnar.
|