| Björn og Íris Anna sigruðu í Víðavangshlaupi ÍR |
|
|
|
| Fimmtudagur, 22. apríl 2010 15:35 |
|
Í dag fór 95. Víðavangshlaup ÍR fram í miðborg Reykjavíkur. Hlaupin var 5 km vegalengd frá Ráðhúsi Reykjavíkur. Alls voru 478 keppendur skráðir í hlaupið og er það met. 459 hlauparar komu í mark. Sigurvegari í karlaflokki varð Björn Margeirsson, FH, á tímanum 15:31 mínútum. Annar varð Þorbergur Ingi Jónsson, ÍR, á tímanum 15:36 og þriðji Sigurbjörn Árni Arngrímsson, HSÞ, á tímanum 15:42. Í kvennaflokki sigraði Íris Anna Skúladóttir, Fjölni, á tímanum 18:03. Önnur varð Fríða Rún Þórðardóttir, ÍR, á tímanum 18:29. og þriðja varð Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni, á tímanum 18:36 mín. Smellið hér til að skoða heildarúrslit hlaupsins og hér til að skoða flokkaúrslit. |











