Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Fjölnishlaupið framundan Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 28. apríl 2010 10:30

Næsta hlaup á Powerade mótaröðinni 2010 er Fjölnishlaupið sem fer fram í Grafarvogi 20.maí næstkomandi.

Í Fjölnishlaupinu er boðið upp á 10 km hlaup með tímatöku og 1,8 km skemmtiskokk án tímatöku. 10 km hlaupið er ræst kl.20:00 og skemmtiskokkið 5 mínútum síðar. Hlaupið er ræst frá Fjölnisvellinum (við Grafarvogslaug) og hlaupin hefðbundin leið út Grafarvoginn, gegnum Bryggjuhverfið, inn fyrir Elliðaárós og vestur yfir brúna við Geirsnef að snúningspunkti. Sama leið til baka. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.

Forskráning í hlaupið er hafin á hlaup.com. Þátttökugjald er lægra ef forskráð er á netinu. Smelltu hér til að skrá þig.

 
Borði
Borði
Borði
Borði