| 189 luku 10 km í Fjölnishlaupinu |
|
|
|
| Fimmtudagur, 20. maí 2010 22:34 |
|
Annað hlaupið á Powerade mótaröðinni 2010, Fjölnishlaupið, fór fram í Grafarvogi í kvöld. Þátttakendur fengu frábært hlaupaveður, smá rigningarúða og engan vind. Hlaupið var ræst kl.20:00 og kom Björn Margeirsson fyrstur í mark á tímanum 34,52 mínútur. Annar var Jósep Magnússon og þriðji Sigurður Hansen. Í kvennaflokki sigraði Fríða Rún Þórðardóttir 39,09 mínútum. Önnur var Hrönn Guðmundsdóttir á tímanum 41,55 mínútur og þriðja Eva Margrét Einarsdóttir á 42,10. Nánari úrslit má finna á hlaup.com eða með því að smella hér. Als luku 189 hlauparar 10 km vegalengdinni en það eru aðeins fleiri heldur en í fyrra. Einnig var boðið uppá 1,8 km skemmtiskokk þar sem þátttökufjöldi var svipaður og í fyrra eða 63.
|











