Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Miðnæturhlaup Powerade fer fram 23.júní Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 18. júní 2010 15:28

Næsta hlaup á Powerade mótaröðinni er Miðnæturhlaup Powerade sem fram fer í Laugardalnum miðvikudaginn 23.júní. Boðið er uppá þrjár vegalengdir. 5 km hlaupið verður ræst kl.21:50, 10 km kl.22:00 og 3 km kl.22:10.

Í fyrra seldist upp í Miðnæturhlaupið, bæði í 5km og 10km. Því er um að gera að skrá sig strax með því að smella hér. Forskráningu á netinu lýkur klukkan 17:00 22. júní, daginn fyrir hlaup. Einnig verður hægt að skrá sig í hlaupið á hlaupdegi en þá er skráningargjald hærra í 5km og 10 km. Skráning fer fram í gamla anddyri Laugardalslaugar frá klukkan 16:00 og þangað til hálftíma fyrir hlaup.

Eftir hlaupið býðst þátttakendum að svala þorstanum með hressandi Powerade drykk og láta þreytuna líða úr sér í Laugardalslauginni. Nánari upplýsingar um Miðnæturhlaup Powerade má finna á heimasíðu hlaupsins: http://www.marathon.is/midnaeturhlaup.

Ólympíudagurinn verður haldinn hátíðlegur á Íslandi og um allan heim á sama degi og Miðnæturhlaupið fer fram, 23.júní. Meðal annars verður dagskrá í Laugardalnum frá kl.20-22 þar sem hægt verður að prófa ýmsar íþróttagreinar eins og hafnabolta, fimleika, júdó, skylmingar o.fl. Einnig verður opin skemmtileg þrautabraut í Egilshöll á vegum Fjölnis kl.13-15. Hvetjum alla til að kynna sér viðburði Ólympíudagsins á heimasíðu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, isi.is.

 
Borði
Borði
Borði
Borði