| Vel heppnað Miðnæturhlaup |
|
|
|
| Fimmtudagur, 24. júní 2010 00:00 |
|
Í kvöld fór fram í blíðskaparveðri Miðnæturhlaup Powerade. Hlaupið í ár var það fjölmennasta til þessa með rétt um 1500 keppendum í þremur vegalengdum. Augljóst er af skráningum að fleiri hafa áhuga á lengri vegalengdunum, 5 og 10km, þar sem að það fækkaði verulega í skemmtiskokkinu. Sigurvegarar í 10 km voru Björn Margreirsson og Fríða Rún Þórðardóttir en í 5 km voru það Steinn Jóhannsson og Gerður Rún Guðlaugsdóttir sem urðu hlutskörpust. Smelltu hér til að skoða nánari úrslit. Myndir frá Miðnæturhlaupi Powerade 2010 eru komnar inná heimasíðu hlaupsins. |











