| Ármannshlaupið á þriðjudag |
|
|
|
| Þriðjudagur, 06. júlí 2010 14:35 |
|
Hlaupin er hröð og skemmtileg braut út úr Laugardalnum um Engjaveg og Sigtún, norður Laugarnesveg og síðan eftir göngustíg við Sæbraut vestur fyrir Sólfarið. Sjá nánar á korti með því að smella hér. Skráning í hlaupið er hafin á hlaup.com. Skráningargjald er kr. 1.500 í forskráningu á netinu en kr. 2.000 ef skráð er á staðnum. Allir sem ljúka hlaupinu fá þátttökuverðlaun en auk þess eru veittir verðlaunagripir fyrir fyrstu þrjú sætin í karla og kvenna flokki auk aldursflokka- og útdráttarverðlauna. Smelltu hér til að skoða nánari upplýsingar um Ármannshlaupið 2010. |






Þriðjudaginn 13.júlí næstkomandi fer fram fjórða og næst síðasta hlaupið á Powerademótaröðinni 2010, Ármannshlaupið. Hlaupið sem er 10 km verður ræst við Laugaból félagshús Ármanns og Þróttar í Laugardalnum. 


