Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Björn með fullt hús Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 09. júlí 2010 01:04

Björn Margeirsson hefur sigrað í fyrstu þremur hlaupunum á Powerademótaröðinni sumarið 2010 og er því með fullt hús stiga í stigakeppni mótaraðarinnar. Jósep Magnússon, sigurvegari mótaraðarinnar sumarið 2009, er í öðru sæti í stigakeppni karla og Tómas Zoega Geirsson í því þriðja.

Fríða Rún Þórðardóttir er einnig með nokkuð afgerandi forystu í kvennaflokki en hún hefur sigrað í tveimur hlaupum og verið í öðru sæti í einu. Hrönn Guðmundsdóttir er í öðru sæti í stigakeppni kvenna og María Kristín Gröndal í því þriðja.

Það verður spennandi að sjá hvort að þau Björn og Fríða Rún haldi uppteknum hætti í fjórða og næst síðasta hlaupi Powerademótaraðarinnar þetta sumarið, Ármannshlaupinu.

Smellið hér til að skoða stöðuna í stigakeppni Powerademótaraðarinnar sumarið 2010.

 
Borði
Borði
Borði
Borði