| Arndís Ýr og Jósep sigruðu í Ármannshlaupinu |
|
|
|
| Miðvikudagur, 14. júlí 2010 00:52 |
|
Sigurvegari í karlaflokki var Jósep Magnússon á tímanum 34:52. Í öðru sæti var Haraldur Tómas Hallgrímsson og í því þriðja Þórólfur Ingi Þórsson. Í kvennaflokki sigraði Arndís Ýr Hafþórsdóttir á tímanum 38:29. María Kristín Gröndal varð í öðru sæti í kvennaflokki og Hrönn Guðmundsdóttir í þriðja sæti. Smellið hér til að skoða úrslit úr Ármannshlaupinu 2010. Myndir frá hlaupinu eru væntanlegar á morgun á myndavef Frjálsíþróttadeildar Ármanns. |








Ármannshlaupið fór fram í blíðskaparveðri í Laugardalnum og nágrenni í kvöld. Keppt var á hraðri og skemmtilegri 10 km braut sem byrjaði og endaði við Laugaból, félagshús Ármanns og Þróttar í Laugardal. Als luku 225 hlaupinu í kvöld en 182 luku því árið 2009 þegar það var haldið í fyrsta sinn eftir margra ára hlé.


