Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Björn og Fríða Rún með forystu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 01. ágúst 2010 00:00

Þegar fjórum hlaupum af fimm á Powerademótaröðinni er lokið eru þau Björn Margeirsson og Fríða Rún Þórðardóttir með forystu í stigakeppninni. Fimmta og síðasta hlaupa mótaraðarinnar þetta sumarið er Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer 21.ágúst næstkomandi.

Fríða Rún er með nokkuð góða forystu í stigakeppni í kvennaflokki en þó eiga Hrönn Guðmundsdóttir og María Kristín Gröndal möguleika á að stela af henni sigrinum í síðasta hlaupinu. Það nægir Fríðu Rún að verða í 4.sæti 10 km hlaupsins í Reykjavíkurmaraþoni til að verða stigameistari sumarsins á Powerademótaröðinni.

Jósep Magnússon getur einn stolið efsta sætinu af Birni Margeirssyni í stigakeppni karla. Björn þarf að lenda í 8.sæti 10 km hlaupsins í Reykjavíkurmaraþoni eða neðar og Jósep að sigra hlaupið til að það geti gerst.

Smellið hér til að skoða stöðuna í stigakeppni Powerademótaraðarinnar 2010.

 

 

 
Borði
Borði
Borði
Borði