| Fríða Rún og Jósep sigruðu |
|
|
|
| Fimmtudagur, 02. september 2010 15:29 |
|
Sigurvegarar á Powerademótaröðinni 2010 eru þau Fríða Rún Þórðardóttir og Jósep Magnússon. Bæði tóku þau þátt í fjórum hlaupum af fimm á mótaröðinni þetta sumarið. Í kvennaflokki var baráttan hörð um annað sætið en því náði Hrönn Guðmundsdóttir á 53 stigum en í því þriðja varð Arndís Ýr Hafþórsdóttir með 52 stig. Sigurvegarinn í kvennaflokki Fríða Rún var með 65 stig. Keppnin var einnig hörð í karlaflokki en sigurvegarinn Jósep Magnússon var með 65 stig og í öðru sæti Björn Margeirsson með 60 stig. Í þriðja sæti varð síðan ungur og efnilegur hlaupari Tómas Zoëga Geirsson með 31 stig. Þrír stigahæstu hlaupararnir í karla- og kvennaflokki fengu verðlaun sín afhend í Lækjargötunni 21.ágúst þegar Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram. Stigahæstu hlaupararnir í hverjum aldursflokki meiga eiga von á gjafabréfi frá Vífilfelli í pósti næstu daga. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um stigakeppni Powerademótaraðarinnar 2010. |











