|
Fimmtudagur, 20. maí 2010 22:34 |
|
Annað hlaupið á Powerade mótaröðinni 2010, Fjölnishlaupið, fór fram í Grafarvogi í kvöld. Þátttakendur fengu frábært hlaupaveður, smá rigningarúða og engan vind.
Hlaupið var ræst kl.20:00 og kom Björn Margeirsson fyrstur í mark á tímanum 34,52 mínútur. Annar var Jósep Magnússon og þriðji Sigurður Hansen. Í kvennaflokki sigraði Fríða Rún Þórðardóttir 39,09 mínútum. Önnur var Hrönn Guðmundsdóttir á tímanum 41,55 mínútur og þriðja Eva Margrét Einarsdóttir á 42,10.
Nánari úrslit má finna á hlaup.com eða með því að smella hér.
Als luku 189 hlauparar 10 km vegalengdinni en það eru aðeins fleiri heldur en í fyrra. Einnig var boðið uppá 1,8 km skemmtiskokk þar sem þátttökufjöldi var svipaður og í fyrra eða 63.
.JPG)
|
|
|
Miðvikudagur, 28. apríl 2010 10:30 |
|
Næsta hlaup á Powerade mótaröðinni 2010 er Fjölnishlaupið sem fer fram í Grafarvogi 20.maí næstkomandi.
Í Fjölnishlaupinu er boðið upp á 10 km hlaup með tímatöku og 1,8 km skemmtiskokk án tímatöku. 10 km hlaupið er ræst kl.20:00 og skemmtiskokkið 5 mínútum síðar. Hlaupið er ræst frá Fjölnisvellinum (við Grafarvogslaug) og hlaupin hefðbundin leið út Grafarvoginn, gegnum Bryggjuhverfið, inn fyrir Elliðaárós og vestur yfir brúna við Geirsnef að snúningspunkti. Sama leið til baka. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.
Forskráning í hlaupið er hafin á hlaup.com. Þátttökugjald er lægra ef forskráð er á netinu. Smelltu hér til að skrá þig. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 5 af 13 |