Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Góðgerðafélög 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Eftirfarandi eru upplýsingar um góðgerðafélögin sem skráðu sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2011.


ABC barnahjálp
ABC barnahjálp er íslenskt hjálparstarf sem stofnað var árið 1988. Starfið snýst um það að gefa fátækum börnum í þróunarlöndum tækifæri til menntunar og hjálpa götubörnum til nýs lífs með því að veita þeim heimili og menntun. ABC barnahjálp hefur byggt og rekur skóla og heimili í 10 löndum Asíu og Afríku og stunda um 12.000 börn nám með hjálp íslenskra stuðningsaðila. ABC skólarnir veita fátækum börnum frá 3ja ára aldri ókeypis menntun, skólagögn, skólabúning, læknishjálp og eina máltíð á dag. Um 4000 barnanna búa á heimavistum og barnaheimilum ABC. Nánari upplýsingar má finna á www.abc.is


ADHD
Markmið ADHD samtakanna er að börn og fullorðnir með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir mæti skilningi alls staðar í samfélaginu og fái tilskylda þjónustu. ADHD samtökin starfa á grundvelli faglegs samstarfs við opinbera fagaðila og félagasamtök og telja um 1400 félagsmenn. Hjá samtökunum starfar fagráð skipað sérfræðingum. Samtökin halda m.a. námskeið fyrir kennara, foreldra barna og foreldra unglinga ásamt því að standa fyrir fræðslufyrirlestraröð. Skrifstofa og upplýsingasími samtakanna er opin frá kl. 13-16 alla virka daga. Samtökin standa fyrir útgáfu á bæklingum, bókum og öðru fræðsluefni. Í haust munu ADHD samtökin taka þátt í evrópskri vitundarviku dagana 18.-25. september. Heimasíða samtakanna er www.adhd.is


AHC félagið á Íslandi

Tilgangur AHC samtakana á Íslandi er að koma á framfæri og fræða sem flesta um Alternating hemiplegia auk þess sem samtökin styrkja rannsóknir á Alternating Hemiplegia of Childhood og standa þétt við bakið á AHC sjúklingum á Íslandi. AHC samtökin halda úti heimasíðunni www.ahc.is . AHC samtökin eru í samstarfi við hliðstæð erlend samtök auk þess að vera í samstarfi við alla helstu aðila sem koma að rannsóknum á AHC. Nánari upplýsingar má finna á www.ahc.is


AMSIS
Alþjóða menntasamtökin á Íslandi (AMSIS) hafa það markmið að stuðla að aukinni menntun kvenna í þróunarlöndum með því að efla sjálfsvitund og sjálfstraust ungra kvenna. AMSIS mun opna þekkingarmiðstöð fyrir ungar konur í áhættuhópum á aldrinum 12-20 ára í Pikine hverfinu í Dakar, Senegal, haustið 2011. Í Þekkingarmiðstöðinni mun fara fram kennsla sem miðar að því að styrkja konurnar í átt að sjálfstæðara og betra lífi, þ.e. gera konurnar hæfari til að takast á við framtíðina styrkari fótum og auka möguleika þeirra á vinnumarkaðnum. Mikilvægt er að efla menntun kvenna í Senegal í ljósi þess að oftar en ekki er lögð meiri áhersla á að mennta drengi en stúlkur. Nánari upplýsingar má finna á www.amsisis.wordpress.com


Astma- og ofnæmisfélagið
Astma- og ofnæmisfélagið var stofnað 1974 til að berjast fyrir hagsmunum þeirra sem eru með astma og ofnæmi. Skrifstofa félagsins er við Síðumúla 6, 108 Reykjavík (í húsi SÍBS) og sinnir starfsmaður félagsins erindum þar mánudögum kl.9-15. Félagið talar máli sjúklinga með astma og ofnæmi við yfirvöld heilbrigðismála, kennslumála og við aðra áhrifahópa í þjóðfélaginu. Styrktarsjóður félagsins styrkir rannsóknir og starfsþjálfun heilbrigðisstarfsfólks á sviði astma og ofnæmis. Félagið á aðild að Samtökum íslenskra berkla- og brjósthols-sjúklinga (SÍBS) og norrænum samtökum sjúklinga með astma og ofnæmi. Félagið er öllum opið og voru félagsgjöld fyrir árið 2010 kr. 2000, hálft gjald fyrir börn, ellilífeyrisþega og öryrkja. Heimasíða félagsins er ao.is.


AUS - Alþjóðleg ungmennaskipti
Alþjóðleg ungmennaskipti, AUS, eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og fræðslusamtök sem starfað hafa í 50 ár. Markmið AUS er að gefa ungu fólki tækifæri til ferðast til framandi landa og upplifa ólíka menningarheima í þeim tilgangi að auka þekkingu og skilning á ólíkri menningu og samfélögum og stuðla þannig að friði og skilningi milli einstaklinga og þjóða og vinna gegn fordómum og hleypidómum hvers konar. AUS eru frjáls félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða og af heimkomnum sjálfboðaliðum. Á vegum AUS hafa meira en 1000 Íslendingar farið út um allan heim og annar eins fjöldi komið til landsins og dvalið um skeið. Nánari upplýsingar má finna á www.aus.is


Ás styrktarfélag
Starfsemi Ás styrktarfélas er eins og segir í lögum þess: Að gæta hagsmuna og reka þjónustu til stuðnings fólki með fötlun, sér í lagi greindarskerðingu og tengdar fatlanir. (tilv.líkur) Einnig höldum við úti nokkrum verkefnum til frekari framvindu hagsmunamálum fólks með þroskahömlun. Má þar nefna Þekkingarsetur og Breyttan lífsíl, sjá nánar á heimasíðu: www.styrktarfelag.is


Átak - félag fólks með þroskahömlun
Átak var stofnað 20 september 1993. Átak var stofnað til þess að berjast fyrir réttindum fólks með þroskahömlun. Að tryggja lífsgæði og minnka fordóma i garð fólks með þroskahömlun. Nánari upplýsingar má finna á www.lesa.is


Bandalag íslenskra Skáta
Skátahreyfingin hefur sett sér það að markmiði að stuðla að því að börn og unglingar verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar. Með því að tala um að veita einstaklingum þroska, er átt við það að hver maður býr yfir fjölmörgum eiginleikum sem unnt er að rækta og þróa. Skátahreyfingin leggur áherslu á að skátar verði sjálfstæðir einstaklingar, sem venjast á að bera ábyrgð á því sem þeim er falið, læra að bera ábyrgð á eigin gerðum með markvissri þjálfun. Læri að meta, rökræða og taka afstöðu til mála. Venjist því að vinna með öðrum og virða skoðanir annarra. Virða jafnan rétt allra manna og skilja þjóðfélagslega samábyrgð allra þegna landsins. Nánari upplýsingar má finna á www.skatar.is


Barnaheill - Save the Children á Íslandi

Um allan heim eru börn sem vildu ekkert frekar en geta hlaupið um og leikið sér. Þú getur lagt þitt af mörkum til að tryggja mannréttindi barna með því að hlaupa fyrir þau og Barnaheill - Save the Children á Íslandi. Hérlendis leggja samtökin áherslu á að standa vörð um réttindi barna og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja samtökin menntun barna og neyðaraðstoð en alþjóðasamtökin Save the Children International vinna að réttindum og velferð barna í 120 löndum með barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Kynntu þér sögur barna sem þurfa á þinni hjálp að halda. 


Bergmál
Tilgangur félagsins er að hlynna að krabbameinssjúkum, blindum, öldruðum og öðrum þeim er búa við langvarandi sjúkdóma. Frá árinu 1994 hefur félagið staðið fyrir orlofsvikum fyrir skjólstæðinga sína yfi sumarið þeim að kostnaðarlausu, auk samverustunda yfir veturinn. Nánari upplýsingar má finna á www.bergmal.is.


Björgunarsveitin Lífsbjörg Snæfellsbæ
Björgunarsveitin ber nafnið Lífsbjörg Snæfellsbæ og hefur aðsetur í Rifi Snæfellsbæ Á útkallslista eru um 45 félagar sem sinna fjölda aðstoðarbeiðna á hverju ári einnig starfar innan sveitarinnar unglingadeildin Dreki og eru félagar hans sem eru á aldrinum 14-18 ára þjálfaðir upp í björgunarstörfum. Helsta starfsvæði sveitarinnar er Snæfellsnes en á nesinu er vaxandi ferðamennska og er Þjóðgarðurinn og Snæfellsjökull helsta aðdráttaraflið. Björgunarsveitin aðstoðar alltaf töluvert af ferðamönnum á hverju ári sem lenda í margskonar vandræðum. Mjög öflug útgerð er í Snæfellsbæ og mjög klettótt og erfið strönd björgunarsveitin mannar Björgunarskipið Björg sem er staðsett í Rifshöfn fyrir framan nýja björgunarstöð sem svetin er að ljúka við að byggja. Heimasíða félagsins er: http://bjorgunarsveit.123.is/  


Blátt Áfram

Blátt Áfram hóf starfsemi sína 2004, eru sjálfstæð félagasamtök og tilgangur samtakanna er að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi.
Hvernig eflum við forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum? Blátt áfram heldur; fræðsluerindi fyrir starfsfólk og foreldra í grunn og leikskólum landsins, lífsleikni fyrir unglinga í grunnskólum og félagsmiðstöðvum, og brúðleikhús fyrir börn í leik og grunnskólum. Viljum við ná til allra stofnanna sem starfa með börnum og ungu fólki. Með þinni aðstoð munu við ná settu marki. Ekkert barn á að þurfa að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Nánari upplýsingar má finna á www.blattafram.is


Blindrafélagið
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, er samfélagslegt afl – mannréttindasamtök - sem berst fyrir að blindir og sjónskertir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu, innihaldsríku og ábyrgu lífi, og að þeim sé tryggður jafn réttur og jöfn tækifæri til ábyrgrar, virkrar og viðurkenndrar þátttöku í öllum þáttum samfélagsins. Hutverk Blindrafélagsins er að stuðla að því að blindir og sjónskertir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi og séu ábyrgir og virkir samfélagsþegnar. Nánari upplýsingar má finn á www.blind.is


Blóðgjafafélag Íslands
Blóðgjafafélag Íslands er hagsmunafélag íslenskra blóðgjafa. Jafnframt hefur Blóðgjafafélagið það hlutverk að tryggja nægilegt framboð blóðs til lækninga á Íslandi með því að fræða almenning um eðli og mikilvægi blóðgjafa. Sérstök áhersla er lögð á að ná til ungmenna í því sambandi. Með því að auka þekkingu ungs fólks og stuðla að jákvæðu viðhorfi unglinga til blóðgjafa, vonast félagsmenn Blóðgjafafélagsins til þess að á næstu áratugum verði tryggt það framboð af sjálfboðnu gjafablóði sem sjúkir og slasaðir á Íslandi þurfa á að halda.


Breið bros

Tilgangur Breiðra brosa er að starfa að hinum ýmsu málefnum barna sem fæðast með skarð í vör og/eða góm eða önnur andlitslýti. Í því felst meðal annars: Stuðningur við foreldra barna með skarð, bæði nýorðna foreldra og hina eldri. Vinna að fræðslumálum. Vinna að hagsmuna- og réttindamálum barna með skarð. Nánari upplýsingar má finna á www.breidbros.is


Bætum ein-stök brjóst
Bætum ein-stök brjóst er góðgerarfélag sem er bakhjarl Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur, en Minningarsjóðnum er ætlað að styrkja skurðlækningar og meðferð við brjóstakrabbameini við Landspítala. Lífslíkur kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein hafa aukist og vegna þessa er aukin áhersla lögð á skurðmeðferð m.a. með endursköpunaraðgerðum á brjóstum. Ör þróun hefur orðið á þessu sviði sem kallar á meiri og betri aðstöðu fyrir bæði sjúklinga og þá sem annast meðferðina. Á Landspítalanum er komin vísir að Brjóstamóttöku og hlutverk Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur er að styðja við þá starfsemi sem þar fer fram. Margrét Oddsdóttir var skurðlæknir á Landspítalanum en hún lést úr brjóstakrabbameini langt um aldur fram í janúar 2009. Nánari upplýsingar má finna á www.brjost.is


Drekaslóð - líknarfélag
Drekaslóð er þjónustu og fræðslumiðstöð fyrir þolendur alls konar ofbeldis, aðstandendur og alla þá sem vilja kynna sér málin betur. Við bjóðum upp á einstaklingsviðtöl, margs konar hópastarf, fyrirlestra og fræðslu. Við bendum sérstaklega á bæði karlar og konur eru velkomin til okkar og það skiptir ekki máli hvort að ofbeldið var framið af karli, konu eða barni. Við viljum gera það sem við getum til að bæta líðan fólks í samfélaginu okkar. Heimasíða: www.drekaslod.is


Dropinn

Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki stuðlar að velferð barna og unglinga með sykursýki. Eitt höfuðmarkmiða Dropans er að standa að sumarbúðum fyrir börn og unglinga með sykursýki. Einnig er markmið þess að miðla fræðslu og veita stuðning foreldrum barna með sykursýki. Allt starf félagsmanna í þágu Dropans er unnið í sjálfboðavinnu. Nánari upplýsingar má finna á www.dropinn.is


Dýrahjálp Íslands
Dýrahjálp Íslands leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stefnir að því að stofna til þess dýraathvarf og að vinna almenning í landinu til fylgis og stuðnings við dýravernd. Þangað til hægt verði að stofna til slíks athvarfs mun félagið, með aðstoð sjálfboðaliða félagsins, leitast við að finna þeim dýrum sem annars væri lógað ný heimili, hvort sem það er fósturheimili til skammst tíma þar til framtíðarheimili finnst eða beint á varanlegt heimili. Heimasíða félagsins er dyrahjalp.is


Einstök börn
Einstök börn er stuðningsfélag fyrir börn með langvinna og sjaldgæfa sjúkdóma, sem yfirleitt eru ólæknandi. Félagið veitir þessum börnum og aðstandendum þeirra andlegan, félagslegan og fjárhagslegan stuðning eftir megni. Nánari upplýsingar má finna á www.einstokborn.is


FAAS
FAAS-félag áhugafólks og aðstandenda alzheimersjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma eru samtök sem starfa um allt land. Markmið félagsins er m.a. að gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna, efla samvinnu og samheldni aðstandenda m.a. með fræðslufundum og útgáfustarfsemi og auka skilning stjórnvalda, heilbrigðisstétta og almennings á þeim vandamálum sem þessir einstaklingar og aðstandendur þeirra eiga við að etja. Í nafni félagasins er haldið út fræðslu um heilabilun og umönnun fólks með sjúkdómana og ráðgjöf til fjölskyldna hinna sjúku. Heimasíða félagsins er www.alzheimer.is.


Ferðafélag Guggu
Félagið styrkir Guðrúnu Jónu Jónsdóttur fjárhagslega til ferðalaga. Guðrún er verulega líkamlega fötluð eftir líkamsárás þegar hún var 15 ára og þarf tvo aðstoðarmenn á ferðalögum og ýmsan sérútbúnað. Ferðalögin eru kostnaðarsöm og því reka vinir henna Ferðasjóð sem safnar árlega fjármögnunum til að gera Guðrúnu mögulegt að ferðast. Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu félagsins (Ferðasjóður Guggu).


Félagið CP á Íslandi

CP félagið var stofnað af fjölskyldum og fagaðilum árið 2001. CP stendur fyrir Cerebral Palsy sem hefur verið þýtt á íslensku sem heilalömun. CP er afleiðing skaða eða áfalls í stjórnstöðvum hreyfinga í heila, sem verða áður en heilinn nær fullum þroska. Skaðinn verður því á meðgöngu, í fæðingu eða fljótlega eftir fæðingu. Skemmdirnar torvelda stjórnun hreyfinga og beitingu líkamans. Þær eru óafturkræfar. Fötlunin er margbreytileg og einkenni mismunandi. Sumir með CP hreyfa sig og þroskast nánast eðlilega meðan aðrir þarfnast aðstoðar við nánast allar athafnir daglegs lífs. Þeir einstaklingar eru háðir mörgum hjálpartækjum og stöðugri umönnun. Nánari upplýsingar má finna á www.cp.is


Félag áhugafólks um downsheilkenni
Félagið var stofnað formlega árið 1997 af foreldurm barna með Downs heilkenni. Tilgangur félagsins er að standa fyrir og stuðla að fræðslu fyrir foreldra og almenning um Downs heilkenni. Félagið veitir auk þess foreldrum og einstaklingum með Downs margþættan stuðning og leiðsögn.
Félagið er að byggja upp nýja heimasíðu sem mun verða upplýsingabrunnur fyrir nýbakaða foreldra barna með Downs og þeirra sem eldri eru. Boðið er upp á hátíðir og samverustundir þar sem félagsmenn geta komið saman deilt reynslu sinni, en umfram allt glaðst og skemmt sér saman.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á www.downs.is


Félag Heyrnalausra
Félag heyrnarlausra er öflugt hagsmunafélag með mikla þekkingu á málefnum er varða íslenskt táknmál og menningarsamfélag heyrnarlausra. Félag heyrnarlausra veitir hvers konar ráðgjöf og álit er snúa að málefnum heyrnarlausra og hefur ávallt að leiðarljósi hagsmuni félagsmanna sem tryggir þeim jafnræði hvarvetna í samfélaginu. Nánari upplýsingar má finna á www.deaf.is


Félag Nýrnasjúkra
Félag nýrnasjúkra er líknarfélag sem hefur það að markmiði að styðja nýrnasjúka og aðstandendur þeirra. Meðal starfseminnar eru fræðslufundir, útgáfu fræðsluefni og stuðningsfundir. Nánari upplýsingar má finna á www.nyra.is


Fjóla
Fjóla, félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu hét áður Daufblindrafélag Íslands en nafninu var breytt þann 3. júní 2011. Fjóla er hagsmuna félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, daufblinds fólks. Félagið vinnur að hvers konar menningar og hagsmunamálum fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Félagið heldur úti félagsstarfi og hjá því er starfandi einn starfsmaður í hálfu starfi sem aðstoðar félagsmenn og heldur utan um starfið.


Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík

Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík er björgunarsveit sem leitast við að hafa ávallt vel þjálfara björgunarmenn til staðar og gerðar eru miklar kröfur til þeirra varðandi hæfni, bæði líkamlega og andlega. Nýliðaþjálfun tekkur tvö ár fyrir alla félaga og er ströng en í framhaldinu gefst félögum kostur á símenntun og endurmenntun í björgunarfræðum, bæði hér heima og erlendis. Flugbjörgunarsveitin er rekin með fjáröflunum. Nánir upplýsingar má finna á www.fbsr.is


Foreldrafélag Gidole
Foreldrafélag Gidole er líknarfélag sem rekið er án hagnaðar. Tilgangur félagsins er að gefa munaðarlausum börnum á forskólaaldri í borginni Gidole í Eþíópíu tækifæri sem þau hefðu annars ekki fengið með því að sjá þeim fyrir fæði, klæði og menntun. Foreldrafélagið Gidole var stofnað af áhugafólki í ágúst 2010. Nú er búið að byggja leikskóla og við höfum 17 börn á okkar framfæri. Nú er verið að safna fyrir svefnskála svo börnin eigi næturskjól innan lóðamarka skólasvæðisins. Einnig er stefnt á stækkun leikskólans til að gefa fleiri börnum tækifæri á nýju lífi með von og kærleik að leiðarljósi. Heimasíða félagsins er parentsgidole.com


Foreldra og styrktarfélag heyrnadaufra
Eins og segir í nafni félagsins er það foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra og fjölskyldna þeirra. Félagið hefur það markmið að halda uppi fræðslustarfsemi meðal foreldra heyrnardaufra barna, auka sem mest kynni þeirra á milli og samstarf í þágu heyrnardaufra. Félagið reynir að standa vörð um réttindi heyrnardaufra til náms og styrkir félagsmenn sína til að þeir geti átt möguleika á að taka þátt í tómstunda- og menningarlífi hérlendis sem og erlendis. Félagið hefur einnig styrkt þá sem mennta sig í þágu heyrnardaufra og styrkt útgáfu kennsluefnis sem nýtist heyrnardaufum. Heimasíða félagsins www.fsfh.is


Fuglavernd
Markmið Fuglaverndar er verndun fugla og búsvæða þeirra. Sérstaklega tegunda í útrýmingarhættu á Íslandi. Þessu má ná með því að;
-vekja áhuga landsmanna fyrir fuglalífi landsins með fræðslustarfsemi en við höldum fræðslufundi mánaðarlega yfir veturinn og stöndum fyrir fjölda fuglaskoðana yfir sumartímann
-vinna með innlendum og erlendum fugla- og náttúruverndarsamtökum svo sem BirdLife International
-aðstoða og standa að rannsóknum á fuglum og búsvæðum þeirra en félagið var upphaflega stofnað í kringum örninn og verndun hans
-koma fram gagnvart stjórnvöldum landsins og öðrum aðilum t.d. með því að þrýsta á styttingu veiðitíma þegar við á og vernda mikilvæg búsvæði fugla .
Nánari upplýsingar má finna á www.fuglavernd.is


Fundadores
Markmið félagsins er að byggja skóla í fátækrahverfi í Santa Marta í Kólumbíu og stuðla þannig að menntun og framtíð fyrir börnin sem þar búa. Frekari upplýsingar og myndir má finna á www.facebook.com/losfundadores


FSMA á Íslandi
Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna þeirra einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum og aðstandenda þeirra. Tilgangur félagsins er einnig að stuðla að því að lækning finnist sem fyrst við sjúkdómnum og miðlun upplýsinga honum tengdum, jafnt til þeirra sem tengjast sjúkdómnum beint sem og til almennings. Nánari upplýsingar má finna á www.ci.is


Geðhjálp
Geðhjálp, sem stofnað var 9.október 1979 er félag þeirra sem hafa þurft eða þurfa aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra er láta sig geðheilbrigðismál varða á landsvísu. Tilgangur félagsins er að vinna að geðheilbrigðismálum og bæta hag þeirra, sem eiga við geðræn vandamál að stríða, barna og fullorðinna, svo og aðstandenda þeirra. Heimasíða félagsins er www.gedhjalp.is


Geðverndarfélag Íslands
Geðverndarfélagið var stofnað fyrir 60 árum í þeim tilgangi að „vekja almenning og stjórnarvöld til aukins skilnings á mikilvægi geðheilbrigði fyrir alla menn, unga sem gamla“ eins og segir í 2. gr. laga félagsins frá 1950. Einnig segir þar um tilgang félagsins: Tilgangur félagsins er að
b) Sameina alla þá, sem áhuga hafa á málefnum, er geðheilbrigði varða.
c) Fræða almenning um eðli geðsjúkdóma, mikilvægi sálarlífsins fyrir almenna heilbrigði og kynna ríkjandi skoðanir á því hvernig varðveita megi geðheilbrigði.
d) Stuðla að því, að jafnan verði komið upp nægum og viðunandi heilbrigðisstofnunum fyrir þá sem líða af geðsjúkdómum (psychosis) eða hugsýki (neurosis), eða öðrum geðröskunum.
e) Stuðla að auknum rannsóknum, sem verða megi til aukinnar geðheilbrigði.
f) Taka þátt í alþjóðlegri samvinnu um geðheilbrigðismál og hugrækt.
Nánari upplýsingar má finna á www.gedvernd.is


Gigtarfélag Íslands
Tilgangur Gigtarfélags Íslands er að bæta lífsgæði fólks með gigtarsjúkdóma. Að upplýsa, fræða og styðja gigtarfólk er hlutverk félagsins. Gigtarfélagið rekur Gigtarmiðstöðina að Ármúla 5 í Reykjavík og er hún miðstöð starfseminnar. Deildir félagsins starfa í öllum landsfjórðungum. Starfið miðast við félagsstarf og forvarnir í víðum skilningi. Á Gigtarmiðstöðinni má finna viðhaldsendurhæfingu, skipulagða leikfimi, fræðslu og ráðgjöf fyrir fólk með gigt og aðstandendur þeirra. Félagið styður við rannsóknir á gigt á Íslandi og eru meðlimir félagsins um 5.200. Nánari upplýsingar má finna á www.gigt.is


Göngum Saman
Styrktarfélagið Göngum saman hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar bæði til heilsueflingar og til að afla fjár í styrktarsjóð félagsins. Vikulegar göngur félagsins eru opnar öllum áhugasömum. Nánari upplýsingar má finna á www.gongumsaman.is


Handahlaup
Starfsemi félagsins er fólgin í því að styðja Guðmund Felix Grétarsson. Hann missti hendurnar í vinnuslysi og hefur þurft að mæta ýmiss konar kostnaði vegna slyssins. Undanfarin ár hefur Guðmundur unnið að því að gangast undir ágræðslu handa í Lyon, Frakklandi. Það sem af er ári hefur hann tvívegist farið út í rannsóknir tengdar því með tilheyrandi kostnaði við ferðalög fyrir sig og aðstoðarmanneskju ásamt sjúkrahúskostnaði, eða um tvær milljónir. Þar sem aðgerðir á borð við þessa flokkast ennþá undir að vera „tilraunaaðgerðir" tekur TR ekki þátt í kostnaðinum. Þann 9. september n.k munu frönsku læknarnir taka endanlega ákvörðun um hvort af aðgerðinni verður og þá verður það hlutverk þessa styrktarsjóðs að koma að fjármögnun aðgerðarinnar.


Heilaheill

Félagið HEILAHEILL, samanstendur af þeim sem fengið hafa slag [heilablóðfall, heilblæðingu, blóðtappa eða súrefnisþurrð af einhverju tagi], aðstandendum og fagaðilum, svo og þeim er hafa áhuga á málefninu og koma fræðslu á framfæri.
Slag verður þegar æð sem flytur súrefnis- og næringarríkt blóð til ákveðins svæði heilans stíflast eða springur. Unnið skal að markmiðum félagsins er að stuðla að aukinni þekkingu sjúklinga, aðstandenda og almennings á slagi og afleiðinga þess; að bæta skilyrði þeirra er hafa orðið fyrir slagi; vinna að ráðgjafar- og upplýsingaþjónustu fyrir þá er hafa orðið fyrir slagi, sjúklinga og aðstandanda þeirra um lifnaðarhætti, réttindi og velferð þeirra. Nánari upplýsingar má finna á www.heilaheill.is


Heimili og skóli
Heimili og skóli - landssamtök foreldra eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum. Tilgangur félagsins er að stuðla að velferð og bættum menntunarskilyrðum skólabarna á öllu landinu. Foreldrar og forráðamenn barna geta gerst félagar í Heimili og skóla. Heimili og skóli þjónusta foreldra í leik-, grunn og framhaldssólum á öllu landinu. Samtökin styðja við foreldrastarf og auka samstarf heimila og skóla, auk þess að veita ráðgjöf til foreldra og foreldrasamtaka, gefa út tímarit og ýmiss konar efni um foreldrastarf. Heimasíða félagsins er heimiliogskoli.is


Hetjurnar

Tilgangur félagsins er fjórþættur:
Að gæta hagsmuna langveikra barna og aðstandenda þeirra
Að miðla upplýsingum um hina ýmsu sjúkdóma
Að gefa foreldrum vettvang til að hittast og ræða það sem á þeim brennur varðandi börnin og vandamál þeirra
Að gefa þessum fjölskyldum tækifæri til að hittast og eiga góðar stundir saman.
Nánari Upplýsingar má finna á www.hetjurnar.is


Hjartadeildin
Félagið var stofnað af starfsfólki hjartadeildar Landspítalans með það í huga að gera góða hjartadeild enn betri. Tilgangur sjóðsins er fyrst og fremst að efla þjónustu deildarinnar, styrkja faglegt starf með það fyrir augum að koma betur á móts við þarfir sjúklinga og aðstandendur þeirra.


Hjartaheill
Þegar Landssamtök hjartasjúklinga, sem nú heita Hjartaheill, voru stofnuð var tíðni kransæðasjúkdóms á Íslandi í hámarki. Þá mátti reikna með því að 20- 30 % þeirra sem fengju kransæðastíflu myndu ekki lifa það af. Síðustu ár hefur dánartíðnin við kransæðastíflu lækkað og er í dag einungis um 5%. Þetta var fyrir 25 árum, nánar til tekið 8. október 1983 og voru stofnfélagar 230, nú eru félagsmenn Hjartaheilla 3600. Allt frá stofnun hafa samtökin beitt sér fyrir fræðslu og forvörnum varðandi hjartasjúkdóma, veitt aðstoð og ráðgjöf og staðið fyrir margvíslegum umbótum í þágu hjartasjúklinga. Nánari Upplýsinga má finna á www.hjartaheill.is


Hjartavernd
Hjartavernd er rekin án hagnaðarvonar. Markmið Hjartaverndar hefur ekkert breyst frá stofnun félagsins, en það er að finna helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma og efla forvarnir á því sviði. Rannsóknarstöð Hjartaverndar hóf starfsemi sína 1967 með viðtækri faraldsfræðilegri rannsókn, Hóprannsókn Hjartaverndar, þar sem áhersla var lögð á að finna áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma. Hjarta- og æðasjúkdómar voru þá og eru enn algengasta dánarorsök karla og kvenna á Íslandi. Hjartavernd hefur frá upphafi lagt áherslu á að koma niðurstöðum rannsókna sinna til almennings og heilbrigðisstarfsfólks og hefur staðið fyrir öflugu fræðslustarfi með útgáfu fræðslubæklinga um helstu áhættuþætti sem eru alltaf ókeypis. Nánari upplýsingar má finna á www.hjarta.is


Hjálparstarf kirkjunnar
Hjálparstarf kirkjunnar styður framfaraverkefni á Indlandi, Eþíópíu, Úganda og Malaví. Verkefnin snúa að mannréttindum, bættri stöðu barna og kvenna, betra aðgengi að hreinu vatni og baráttu gegn HIV/alnæmi og öðrum skæðum sjúkdómum. Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að einum stærstu mannúðarsamtökum heims ACT Alliance og sinnir í samstarfi við þau neyðarhjálp um allan heim. Hjálparstarf kirkjunnar sinnir umfangsmikilli aðstoð í öllum landshlutum hér heima – auk fræðslustarfs. Nánari Upplýsingar má finna á www.help.is


Hjálparsveit skáta Garðabæ
Björgunarsveit skipuð sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að takast á við þau krefjandi verkefni sem þeim er falið, allan sólarhringinn, allt árið um kring. Nánari upplýsingar má finna á www.hjalparsveit.is


Hringurinn
Félagið Hringurinn hefur að markmiði að vinnna að líknar- og mannúðarmálum sérstaklega í þágu barna. Við Hringskonur erum starfsfélag og söfnum í sjóð, Barnaspítalasjóð Hringsins. Úr sjóðnum eru veittir styrkir og Barnaspítali Hringsins er þar efstur á blaði. BUGL (Barna- og unglingageðdeild) er okkar hjartans barn líka og heyrir undir Barnaspítalann. Auk þess veitum við styrki til fleirri mála. Nefna má að við styrkjum líka Sjónarhól -fyrir sérstök börn til betra lífs. Nánari upplýsingar má finna á www.hringurinn.is


Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupsstað
• 1. grein : Samtökin heita Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað . 2. Grein: Markmið samtakanna er eftirfarandi: • Að standa vörð um stofnunina og starfsemi hennar. • Að stuðla að kynningu út á við. • Að veita F.S.N. fjárhagslegan- og stuðning og í ýmsum hagsmunamálum. 3. Grein: Tekjur Hollvinasamtaka Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað eru: • Félagsgjöld sem ákveðin eru á aðalfundi samtakanna. • Frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og annarra aðila. • Aðrar tekjur. Fjárframlög til Hollvina¬sam¬takanna má merkja s.s rannsóknum, endur¬hæf¬ingu, endurnýjun tækjakosts og tækja¬kaupum eða beinum fjár¬stuðningi við ákveðið markmið.


Hollvinir Grensásdeildar
Tilgangur samtakanna er að styðja við, efla og styrkja endurhæfingarstarfsemi þá, sem fram fer á Grensásdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss eða í tengslum við þá starfsemi. Heimasíða félagsins er www.grensas.is


Hrói höttur barnavinafélag
Tilgangur sjóðsins er að veita íslenskum börnum, sem eru í grunn- og leikskólum, stuðning. Markmiðið er að stuðla að því að grunnþarfir barna til nauðsynja sé uppfyllt. Heimasíða félagsins er http://hhb.is/.


HS-Samtökin
HS-Samtökin voru stofnuð þann 18.Maí síðastliðinn. Markmið samtakanna er að berjast gegn Hidradenitis Suppurativa og vanlíðan tengdum þeim sjúkdómi. En þessi sjúkdómur lýsir sér í kýlamyndun undir höndum, nára og undir brjóstum. Við vinnum að markmiðum samtakana með því að styðja sjúklinga með ofangreindann sjúkdóm varðandi félagsleg og andleg vandamál, stuðla að aukinni fræðslu meðal sjúklinga og aðstandenda um þennann sjúkdóm, sjáum um þýðingar á fræðsluefni. Erum nýbúin að gefa út bækling. Allar nánari upplýsingar má finna hér http://www.hs-samtokin.is


Hugarafl
Markmið Hugarafls er að vinna að verkefnum sem geta bætt geðheilbrigðisþjónustu, miðlað reynslu þeirra sem hafa notað hana. Vinna að verðmætasköpun, skapa hlutverk og vinna gegn fordómum með sýnileika og stuðla að atvinnusköpun með því að þróa þjónustu út frá reynslu notenda. Hugarafl starfar samkvæmt hugmyndafræði batamódelsins -- þ.e. að mögulegt sé að ná sér af geðsjúkdómum -- og valdeflingar og öll vinna fer fram á jafningjagrundvelli. Nánari upplýsingar má finna á www.hugarafl.is  


Hugarfar
Markmið félagsins er að vinnna að velferð og hagsmunamálum fólks með áunnin heilaskaða og aðstandenda þeirra. Halda úti heimasíðu og veita almennar upplýsingar er varðar áunnin heilaskaða. Þeir sem verða fyrir áunnum heilaskaða er aðallega ungt fólk á aldrinum 10-25 ára og kemur þar margt inn í svo sem, bílslys, ofbeldi og aðrar líkamsmeiðingar og súrrefnisskortur af ýmsu tagi. Nánari upplýsingar má finna á www.hugarfar.is


Hvítabandið
Dagdeild Hvítabandsins Skólavörðustíg 37, tekur við tilvísunum frá móttökuteymi göngudeildar og móttökudeildum. Deildin er ætluð fólki með persónuleikaraskanir, alvarlegt þunglyndi og kvíðaraskanir. Meðferð dagdeildar grundvallast á díalektískri atferlismeðferð (DAM). Á deildinni starfar þverfaglegt teymi. Tímalengd meðferðar er að jafnaði 4 mánuðir. Átröskunarteymi LSH er þverfaglegt teymi sem sinnir greiningu og meðferð við átröskunum. Boðið er upp á fræðslu og stuðning við aðstandendur. Teymið sinnir einnig ráðgjöf og fræðslu til annarra deilda LSH ásamt símaráðgjöf til aðila utan LSH. Til að komast í meðferð þarf tilvísun frá fagfólki t.d. heimilislækni eða öðrum meðferðaraðilum. Meðferð fer fram á göngudeild eða dagdeild.


Indlandsbörn
Indlandsbörn hefur það að markmiði að styrkja fátæk börn á Indlandi til náms. Félagið er í nánu samstarfi við Solstraaler (www.solstraaler.no) í Noregi sem rekur barnaheimili og skóla í þorpinu Puttaparthi á Indlandi. Markmiðið félagsins er að styrkja börn til grunnnáms og framhaldsnáms eftir áhuga og hæfni þannig að þau fái vinnu og geti bjargað sér sjálf. Starfið er í anda barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tengist ekki trúarbrögðum. Allt gjafafé rennur óskert til hjálparstarfsins, ekkert fer í rekstur.


Íslensk ættleiðing
Íslensk ættleiðing er eina ættleiðingarfélagið á Íslandi og eru meginmarkmið félagsins:
- Að aðstoða þá sem vilja ættleiða börn af erlendum uppruna og ávallt þannig að hagsmunir barnsins sitji í fyrirrúmi.
- Að stuðla að velferð kjörfjölskyldna.
- Að vinna að velferðarmálum barna erlendis.
Á þessu ári er búið að sameina 12 fjölskyldur í gegnum félagið. Börnin sem hafa komið til landsins í ár eru frá Indlandi og Kína. Hægt er að skoða heimasíðu félagins á slóðinni www.isadopt.is og gerast vinur okkar á Facebook.


Íþróttafélag Fatlaðra í Reykjavík
Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík var stofnað 30. maí 1974. Félagið var það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Markmið félagsins er að gera fötluðu fólki kleift að stunda íþróttir til æfingar og keppni. Félagið var einn af stofnaðilum Íþróttasambands fatlaðra árið 1979 og er stærsta aðildarfélag þess. Árið 1992 tók félagið í notkun eigið íþróttahús að Hátúni 14 og fer meginhluti starfseminnar fram þar. Nánari upplýsingar má finna á www.ifr.is


Íþróttafélagið Fjörður, íþróttafélag fatlaðra í Hafnarfirði
Íþróttafélagið Fjörður í Hafnarfirði var stofnað árið 1992 til að gera fötluðum einstaklingum í Hafnarfirði og nágrannasveitafélögum kleift að æfa og keppa í íþróttum. Í dag iðkar íþróttafólk félagsins boccia og sund þar sem þau hafa náð góðum árangri bæði hérlendis og erlendis. Auk þess að styrkja líkamann og efla andann er íþróttafélagið frábær vetvangur til félagslegra samskipta. Nánari upplýsingar má finna á www.fjordur.com  


Íþróttasamband Fatlaðra
Íþróttasamband fatlarða er æðsti aðili um íþróttir fatlaðra innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) þar sem starf ÍF er í meginatriðum að hafa yfirumsjón með allri íþróttastarfsemi fatlaðra. Nánari upplýsingar má finna á www.ifsport.is


Kaldársel
Kaldársel eru sumarbúðir á vegum KFUM og KFUK á Íslandi fyrir börn á aldrinum 6 til 13 ára og hafa verið starfandi allt frá árinu 1925. Skálinn í Kaldársel sem var reistur 1925 er enn í notkun og þrátt fyrir bæði endurnýjun og mikið viðhald í gegnum árin þarf senn að fara að huga að nýjum vistarverum. Það verður ekki gert nema fyrir gjafir og styrki hollvina sumarbúðanna. Kaldársel hefur þjónað íslenskri æsku og kristilegu sumarbúðastarfi í tæp 90 ár og mun vonandi gera það áfram um langa framtíð. Nánari upplýsingar má finna á www.kfum.is


Kattholt
Kattholt er athvarf fyrir ketti sem rekið er af Kattavinafélaginu. Nánari upplýsingar má finna á www.kattholt.is


Karitas Hjúkrunar- og ráðgjafarþjónusta

Karitas er hjúkrunar- og ráðgjafarþjónusta fyrir fólk með langvinna sjúkdóma. Karitas starfar samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO á líknarmeðferð og umönnun langveikra. Hjúkrunarfræðingar Karitas hafa áralanga og sérhæfða reynslu á sviði krabbameinshjúkrunar, fjölskylduhjúkrunar og ráðgjafar.
Eitt helsta markmið hjúkrunarfræðinga þjónustunnar er að styðja við einstaklinga sem eru haldnir langvinnum sjúkdómum. Þannig að þeir geti betur tekist á við daglegt líf sitt þrátt fyrir þær breytingar og takmarkanir sem sjúkdómurinn hefur í för með sér.
Þjónustan er sólarhringsþjónusta og er veitt í heimahúsum, með símtölum, tölvusamskiptum og á skrifstofu Karitas. Nánari upplýsingar á www.karitas.is


Klúbburinn Geysir
Styrktarfélag Klúbbsins Geysis (í daglegu tali Klúbburinn Geysir), er brú út í samfélagið fyrir aðila sem hafa átt eða eiga við geðrænar raskanir að stríða. Klúbburinn Geysir býður upp á vinnumiðaðan dag þar sem félagar geta byggt upp færni og sjálfstraust að nýju til að eiga möguleika á meiri virkni í samfélaginu, hvort sem um er að ræða nám, vinnu eða aukna félagslega þátttöku.


Krabbameinsfélag Hafnafjarðar
Félagið er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands. Tilgangur félagsins er að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini með því að: fræða almenning um krabbamein og krabbameinsvarnir; stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu og meðferð krabbameins; stuðla að krabbameinsrannsóknum hér á landi; útvega eða kaupa fullkomnustu lækningatæki á hverjum tíma; beita sér fyrir nægu sjúkrarými fyrir krabbameinssjúklinga og hjálpa krabbameinssjúklingum til þess að fá fullkomnustu sjúkrameðferð sem völ er á , innanlands sem utan. Heimasíða félagsins er: http://www.krabb.is/


Krabbameinsfélag Íslands
Krabbameinsfélagið er áhugamannafélag rekið fyrir velvild almennings. Krabbameinsfélagið annast leit að brjósta- og leghálskrabbameini um land allt. Krabbameinsfélagið gefur út tölfræðilegar upplýsingar um krabbamein á Íslandi og heldur úti fræðslu- og forvarnarstarfi fyrir almenning. Í ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fá þeir sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra upplýsingar sem reynast þeim mikilvægar eins eru þar haldnir fyrirlestrar um krabbamein og heilsufar almennt. Ýmis námskeið eru haldin fyrir sjúklinga og aðstandendur. Krabbameinsfélagið rekur átta íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem krabbameinssjúklingar af landsbyggðinni geta dvalið með fjölskyldu sinni meðan á meðferð stendur. Þitt framlag skiptir máli. Heimasíða félagsins er www.krabb.is


Krabbameinsfélag Suðurnesja
Félagið er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands. Tilgangur félagsins er að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini með því að: fræða almenning um krabbamein og krabbameinsvarnir, stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð krabbameins. Ásamt því að veita krabbameinssjúklingum og aðstandendum stuðning og stuðla að krabbameinsrannsóknum hérlendis. Heimasíða félagsins er krabb.is/sudurnes.


Krabbameinsfélagið Sigurvon
Krabbameinsfélagið Sigurvon var stofnað 4. nóvember 2001 á Ísafirði. Starfssvæði félagsins er norðanverðir Vestfirðir. Tilgangur félagsins er að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini. Þjónustumiðstöð Sigurvonar var opnuð í október 2002 á Ísafirði. Skrifstofan er í dag að Pollgötu 4, Ísafirði og er opin þriðjudaga og miðvikudaga frá kl.10-12 og fimmtudaga 11-13. Þar er veitt upplýsingaráðgjöf og hægt að nálgast ýmislegt fræðsluefni sem tengist sjúkdómnum. Minningarkort til styrktar félaginu eru til sölu á skrifstofu Sigurvonar og í ýmsum verslunum á Ísafirði og nágrenni. Einnig hvetjum við félagsmenn okkar sem aðra til þess að skoða heimasíðu félagsins á veffanginu: svon.blogspot.com


Kraftur
Kraftur er stuðningfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Félagið var stofnað 1. október 1999 og hefur að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða þá sem þurfa á stuðningi að halda. Félagið rekur Stuðningsnet sem sálfræðingur félagsins heldur utan um og þannig er leitast við að aðstoða þá ungu einstaklinga sem greinast með krabbamein og fjölskyldur þeirra. Einnig stendur félagið fyrir útgáfu ýmis konar sem og viðburðum fyrir félagsmenn. Nánari upplýsingar má finna á www.kraftur.is


Kristniboðssambandið
Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK), oft nefnt Kristniboðssambandið, er landssamtök kristniboðshópa, félaga og einstaklinga sem vinna að kristniboði og hjálparstarfi meðal annarra þjóða. Kristniboðssambandið var stofnað árið 1929. Í upphafi studdi það kristniboða sem sendir voru til Kína. Í dag er starfssvæði SÍK aðallega í Afríkulöndunum Eþíópíu og Keníu, einnig Japan, en þar starfa íslenskir kristniboðar. Hér á landi er unnið markvisst starf við boðun og fræðslu. Starfsmenn SÍK taka þátt í margvíslegu starfi á kirkjulegum grunni þar sem þeir sinna fræðslu. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni sik.is.


Kríurnar
Kríurnar – þróunarsamtök í þágu kvenna í Afríku stunda fjáröflun til styrktar verkefnum er styðja við konur í Afríku. Kríurnar hafa nú þegar hafið samstarf við namibísku samtökin Mother to Mother Support Group og stóðu Kríurnar fyrir því að stofnandi þeirra samtaka: namibíska konan Vicky Bam, kæmi til landsins í mars 2010. Vicky hélt erindi um starfs samtakanna og líf sitt sem HIV-smitaðrar konu. Kríurnar hafa einnig gefið út gjafakort í fjáröflunarskyni en kortin hannaði myndlistarmaðurinn Jesús Loayza. Kortin eru seld á heimasíðunni. Nánari upplýsingar má finna á www.kriurnar.is


Ladies Circle Íslands
Tilgangur samtakanna er m.a. að fræða konur um umhverfi sitt og menningu og það er gert með ýmsum hætti. Klúbbar eru með svokallaðar 3 mínútur sem eru ætlaðar því málefni, sem konum liggur á hjarta hverju sinni eða er efst á baugi hjá þjóðinni á hverjum tíma. Mikilvægt er einnig að klúbbar leggi áherslu á að fá til sín fyrirlesara sem veita innsýn í alls kyns málefni sem geta víkkað sýn LC-kvenna á lífið og tilveruna. Við kynnum okkur t.d. skáldskaparmenningu landsins með því að hafa ljóð eða skáld vetrarins. Ellefu klúbbar eru starfandi á Íslandi, tveir á Akureyri, einn á Húsavík, einn á Egilsstöðum, einn í Vestmannaeyjum, tveir í Keflavík og fjórir í Reykjavík.Elínarsjóðurinn er góðgerðar- og hjálparsjóður LcÍ fyrir bágstadda eða hjálparþurfi einstaklinga, sem ábyrgar stofnanir eða einstaklingar óska eftir fjárhagslegum stuðningi við.


Landssamtök hjólreiðamanna
Landssamtök hjólreiðamanna, LHM, eru hagsmuna- og þekkingarsamtök þeirra sem nota reiðhjól. Með jákvæðum hætti viljum við efla hjólreiðar til daglegra samgangna. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO bendir sveitarfélög og ríkisvald á að daglegar hjólreiðar draga verulega úr tíðni hjarta- og kransæðasjúkdóma, brjóstakrabbameins, krabbameins í blöðruhálskirtli, sykursýkis II og marga aðra sjúkdóma. Þeir sem byrja að hjóla lifa lengur og spara heilbrigðiskerfinu og samfélaginu stórar upphæðir, segir WHO. Þessi þekking vilja LHM breiða út, og vinna fyrir réttindi mjúkrar umferðar. Við viljum aðgengi fyrir alla, sérstaklega í þéttbýli. LHM vinnur auk þess fyrir aukna samvinnu og virðingu á milli vegfarenda. www.LHM.is


Lifðu Lífinu
Lifðu Lífinu er félag til stuðnings öllum þeim sem vilja bæta eða greiða úr stjórnleysi úr lífi sínu, eða þeirra sem að þeim standa ( foreldrar, kennarar, fagaðilar makar og svo frv )svo sem þeim sem hafa verið greindir eða telja sig hafa ADHD( Athyglisbrestur með eða án ofvirkni), ADD ( athyglisbrestur), ODD ( mótþróaþjóskuröskun), OCD ( Þráhyggja og árátta) ; PTSD ( Áfallastreyturöskun; Einhverfu og einhverfuróf, Aperger, Tourette og fleiri skyldar raskanir. Lifðu lífinu stendur fyrir málþingum, námskeiðum, ráðstefnum, fræðslu, fyrirlestrum og öflugri heimasíðu með upplýsingum um hvað er hægt að vinna með vandann. Markmið okkar er að rétta fólki verkfæri til að öðlast betri andlega og líkamlega líðan til að það nái stjórn á lífi sínu.


Lionshreyfingin á Íslandi
„Lionshreyfingin á Íslandi er hluti af alþjóðlegri hreyfingu Lionsklúbba sem telur 1,4 milljónir félaga í 206 þjóðlöndum. Á Íslandi eru 2.400 félagar, konur og karlar. Hreyfingin styður alls konar verkefni hér á landi og erlendis og ber þar hæst aðstoð við blinda, neyðarhjálp þar sem nátturuhamfarir verða, umhverfismál, búnað fyrir sjúkrastofnanir, margvíslegan stuðning við aldraða, unglingaskipti á milli landa, námsefni fyrir lífsleiknikennslu í skólum (Lions Quest) og önnur verkefni sem horfa til heilla fyrir samfélagið. Allt söfnunarfé rennur óskipt til líknarmála þannig að hver króna sem safnast rennur beint til verkefna Lions á Íslandi http://www.lions.is/


Litlir englar
Samtökin Litlir Englar eru ætluð þeim sem að hafa misst börn sín í móðurkviði í fæðingu eða stuttu eftir fæðingu sem og þeim sem að þurfa að binda enda á meðgönguna vegna alvarlegs fæðingargalla barns síns. Síðan er einnig ætluð þeim sem misst hafa börn sín einhvern tímann á lífsleiðinni sem og þeirra sem einhverja hluta vegna telja sig þurfa á síðunni að halda. Samtökin voru stofnuð þann 26. janúar 2002 og verða því 10 ára á næsta ári. Í byrjun var starfsemi lítilla engla hugsuð sem samtök en málefnið var nýtt og ekki þótti nógu mikill áhugi fyrir því að hittast reglulega þannig að úr varð að heimasíðan var gerð og þjónar þeim tilgangi að veita fólki upplýsingar og stuðning, miðla af reynslu og gefa ráðgjöf. Eftir að umræðan kom á hefur fólk kynnst og jafnvel verið að hittast og þannig stutt hvort annað. Félagið veitir fyrirlestra og ráðgjöf.


Líf

Líf styrktarfélag hefur þann tilgang að styrkja Kvennadeild Landspítalans, bæta aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma. Markmiðið er að byggja upp öfluga miðstöð fæðinga og kvenlækninga á Íslandi og mun miðstöðin þjónusta konur og fjölskyldur þeirra. Nánari upplýsingar má finna á www.gefdulif.is.


Líknasjóður Brunavarðafélags Reykjavíkur
Tilgangur sjóðsins er að styrkja þá félagsmenn Brunavarðafélags Reykjavíkur sem verða fyrir slysum eða sjúkdómum. Styrk má einnig veita vegna slyss eða sjúkdóma sem makar félagsmanna eða börn yngri en 20 ára verða fyrir. Forgang skulu þeir hafa sem þurfa að leita erlendis eftir læknisaðstoð og eiga við langtíma veikindi að glíma. Stjórn sjóðsins getur einnig kosið að styrkja málefni sem hún telur brýn og varða velferð einstaklinga eða hópa.


Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin og að fólk fái sérhæfða endurhæfingu og stuðning þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek. Húsnæði Ljóssins er eins og fallegt heimili þar sem hægt er að koma í kaffihúsastemningu. Einnig er hægt að taka þátt í þeim tilboðum sem eru á dagskrá alla daga sjá www.ljosid.is og þar má einnig finna nánari upplýsingar.


Málefli
Málefli eru samtök aðstandenda barna með tal- og málþroskafrávik. Samtökin vilja vekja athygli á nauðsynlegri þjónustu við börn með málfrávik og vinna að auknum réttindum barnanna. Einnig fræða aðstandendur og samfélagið um tal – og málþroskahömlum. Nánari upplýsingar má finna á www.malefli.is


ME félag Ísland
ME félag Íslands er hagsmunafélag sjúklinga sem haldnir eru ME sjúkdómnum. ME er skammstöfun á Myalgic Encephalomyelitis en „myalgic“ stendur fyrir vöðvaverki og „encephalomyelitis“ fyrir bólgur í heila eða mænu. Sjúkdómurinn hefur ranglega verið nefndur síþreyta en unnið er að því að útrýma því heiti. Tilgangur félagsins er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru ME sjúkdómnum, m.a. með þeim hætti að efla tengsl ME sjúklinga og standa að fræðslu um ME sjúkdóminn, að fylgjast með nýjungum í rannsóknum og meðferðum á sjúkdómnum og koma þeim fróðleik áfram til félagsmanna sinna og að veita sjúklingum aðstoð og félagslegan stuðning.


Meðferðarheimilið í Krýsuvík
Krýsuvíkur samtökin voru stofnuð 24. apríl 1986, og eru samtök einstaklinga og fyrirtækja sem hafa það að markmiði, að starfrækja Meðferðarheimilið í Krýsuvík, til hjálpar þeim einstaklingum, sem ánetjast hafa vímuefnum og misst stjórn á lífi sínu. Megin áherslan er hjálp til sjálfshjálpar fyrir vímuefnaneytendur. Krýsuvíkursamtökinn eru meðlimur í European Federation of Therapeutic Communities. Allir ráðgjafar hjá Meðferðarheimilinu eru með alþjóðleg ICRC réttindi í vímuefnaráðgjöf á sviði fíknisjúkdóma. Það er fyrir tilstuðlan félaga og fyrirtækja í samtökunum að Krýsuvík gengur, öll framlög hafa í gegnum árin gert það að verkum að Meðferðarheimilið Krýsuvík er enn til staðar fyrir vímuefnaneytendur. Nánari upplýsingar má finna á www.krysuvik.is


MFM Miðstöðin
MFM miðstöðin er meðferðar og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar og átraskanna. Einstaklingsmiðuð meðferð hjá MFM matarfíknarmiðstöðinni innifelur: * Fræðslu um offitu, matar/sykurfíkn og átraskanir; orsakir og afleiðingar. * Ráðgjöf og kynningu á leiðum til lausna, m.a. 12 spora bataleiðinni. * Meðferð og stuðning í meðferðahópum og einstaklingsviðtölum. * Leiðbeiningu um breytt mataræði og stuðning við fráhald. * Matreiðslunámskeið; lært að elda fyrir nýjan lífstíl. "Þegar við vitum í hverju vandamálið felst, er fyrst grundvöllur til að ná tökum á því" http://www.matarfikn.is/


Minningarsjóður blóðlækningadeildar 11g
Sjóður á að styrkja starfsfólk til framhalds- og viðhaldsmenntunar ásamt tækjakaupum.


Minningarsjóður Kristjáns Eldjárns
Minningarsjóður Kristjáns Eldjárns gítarleikara var stofnaður af ættingjum, vinum og samstarfsmönnum Kristjáns sem lést 22. apríl 2002. Sjóðnum er ætlað að verðlauna framúrskarandi tónlistarmenn. Sjóðurinn tekur við frjálsum framlögum og hefur auk þess staðið fyrir tónleikahaldi og útgáfustarfsemi. Nánari upplýsingar má finna á www.eldjarn.net


Minningarsjóður líknardeildarinnar Landspítala í Kópavogi
Veittir eru styrkir til að efla starf líknardeildarinnar, sjúklingum og fjölskyldum þeirra til góðs, ásamt styrkjum til endurmenntunnar starfsfólks. Minningarsjóðurinn hefur einnig það að leiðarljósi að efla þekkingu heilbrigðisstarfsfólks og almennings á líknarmeðferð með því að styrkja verkefni sem tengjast því. 


MND félagið
Hlutverk félagsins er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru MND (motor neurone disease)-hreyfitaugahrörnun. Þetta hlutverk rækir félagið meðal annars með eftirfarandi hætti: Að gæta hagsmuna félagsmanna í hvívetna og vera í fyrirsvari fyrir þá gagnvart innlendum og erlendum aðilum. Að efla tengsl milli MND sjúklinga og standa að fræðslu um sjúkdóminn og rétt félagsmanna, m.a. innan heilbrigðiskerfisins. Að stuðla að byggingu á sérhönnuðu íbúðarhúsnæði fyrir MND-sjúklinga og koma af stað söfnunarátaki í því skyni. Að standa að útgáfustarfsemi, sem tryggi rekstur félagsins og safna í sjóði, sem styrki fjárhagslega MND sjúklinga, sem eiga í erfiðleikum og stuðli að rannsóknum á hreyfitaugahrörnun. Að eiga samstarf við önnur félög af svipuðum toga og heildarsamtök fatlaðra í landinu. Nánari upplýsingar má finna á mnd.is.


MS-félag Íslands
Félagið veitir margskonar þjónustu við MS-fólk og aðstandendur. Boðið er upp á félagsráðgjöf og reglulega fræðslufundi um hvaðeina sem tengist sjúkdómnum auk þess sem formaður er með viðtalstíma. Haldin eru margvísleg námskeið fyrir þá sem greinast með sjúkdóminn og aðstandendur þeirra. Félagið hefur sérútbúna íbúð fyrir fatlaða til skammtímaútleigu, heldur úti heimasíðu, gefur út tímaritið MeginStoð tvisvar á ári auk ýmis fræðsluefnis. Í húsnæði félagsins að Sléttuvegi 5 er rekin sjúkradagvist sem er einkum ætluð fólki með MS. Nánari upplýsingar má finna á www.msfelag.is


Munaðarlaus börn á Haití
Húmanistar á Haítí verið með ýmis konar uppbyggingarverkefni frá því að jarðskjálftinn mikli reið yfir Haiti s.l. ár m.a. að sjá um 100 börn sem misstu forelda sína í jarðskjálftanum.
Fjárhagslegur stuðningur við verkefnið hefur einungis komið frá Íslendingum, fyrirtækjum,samtökum og einstaklingum. Enn er mikil þörf á stuðningi til að þessu litlu líf haldi áfram að dafna og blómstra. Svo þau geti átt mannsæmandi framtíð.
Allur stuðningur rennur beint í verkefnið því það er enginn yfirbygging hvorki hér á Íslandi né á Haiti. Frekari upplýsingar ásamt myndum og video af verkefninu er að finna á vefsíðunni www.vinirlifsins.blogg.is 


Neistinn
Hér á landi greinast um 70 börn með hjartagalla ár hvert og þarf tæplega helmingur þeirra að gangast undir aðgerð af einhverju tagi og er þriðjungur þeirra framkvæmdar erlendis.. Markmið Neistans er m.a. Að auðvelda aðgengi foreldra að upplýsingum sem snúa að hjartasjúkdómum barna og hjartagalla, meðferð þeirra, réttindi fjölskyldunnar ,mannlega þáttinn og fjárhagslegan stuðningur. Nánari upplýsingar má finna á www.neistinn.is


NPA miðstöðin
Tilgangur félagsins er að styðja fatlað fólk við að útvega og skipuleggja persónulega aðstoð. Starfsemin skal byggja á hugmyndafræði um Sjálfstætt líf (Independent Living). NPA er þjónusta sem skipulögð er af fötluðu fólki og miðar að því að það taki fullan þátt í þjóðfélaginu á jafnréttisgrundvelli. NPA felst í að fatlað fólk hafi fulla stjórn á allri aðstoð sem það telur sig þurfa, m.a. með því að ákveða hver, hvar, hvernig og hvenær aðstoðin er veitt. Einnig að fatlað fólk njóti jafnréttis og taki þátt á öllum sviðum samfélagsins án aðgreiningar. Nánari upplýsingar má finna á www.npa.is


Ný Dögun
Ný dögun eru samtök um sorg og sorgarviðbrögð, sem hafa það að markmiði að styðja syrgjendur og alla þá sem vinna að velferð þeirra. Starfsemi félagsins lýtur fyrst og fremst að stuðningi, ráðgjöf, upplýsingaþjónustu og fræðslu. Samtökin eru öllum opin. Félagið hefur á að skipa reyndum aðilum sem unnið hafa að sálgæslu og geta veitt stuðning og ráðgjöf. Ný dögun er áhugamannahópur sem sinnir félagastarfinu í sjálfboðavinnu.


Óskabrunnur
Við erum lítið góðgerðarfélag sem vill helga sig í að hjálpa veiku fólki og fjölskyldum þeirra sem hafa lent illa úti í málum við sjúkraþjónustu og meðferð frá ríkisreknum stofnunum og fá hvergi aðstoð við lögfræðikostnað og hverslags baráttu fyrir sig. Við erum nýbyrjuð en vonumst til að geta þróast í jákvæða átt og hjápað sem flestum sem geta hvergi snúið sér vegna laga eða/og réttindabrota.


Parkinsonssamtökin
Parkinsonsamtökin á Íslandi voru stofnuð árið 1983 og er markmið þeirra að:
- aðstoða sjúklinga og aðstandendur við að leysa úr þeim vanda og erfiðleikum sem sjúkdómnum fylgja
- dreifa upplýsingum, veita fræðslu og styðja við rannsóknir vegna parkinsonveiki
- vera vettvangur umræðu um sameiginleg vandamál félagsmanna
- halda reglulega félagsfundi til skemmtunar og fræðslu
- gefa út rit félagsins og halda úti vefsíðu til að miðla upplýsingum og fræðslu
Skrifstofan er í Hátúni 10b, 9. hæð
Opnunartími skrifstofunnar: Miðvikudaga kl. 17.00-19.00
Sími 552 4440 - símsvörun 11:00 - 15:00 alla daga
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  Vefslóð: http://www.psi.is


PKU félagið á Íslandi
PKU félagið á Íslandi sem er félag einstaklinga með PKU eða skylda efnaskiptagalla, foreldra þeirra, ættingja og annars áhugafólks um velferð þeirra. Starfsemi félagsins núna felst aðallega í útgáfu á kynningar- og fræðsluefni um PKU auk gerð matreiðslubókar o.fl. Þá hefur PKU-félagið staðið fyrir ráðstefnu PKU-félaga í Evrópu sem haldin var hér á landi árið 2008. Nánar á www.pku.is


Rauði Krossinn á Íslandi
Innan Rauða kross Íslands starfa 50 deildir sem sinna margvíslegu mannúðarstarfi í þágu þeirra sem standa höllum fæti í íslensku samfélagi.
Rauði kross Íslands bregst við neyð jafnt innan lands sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum.
Helstu verkefni Rauða kross Íslands eru; Rauðakrosshúsið, - miðstöð fyrir fólk sem orðið hefur fyrir áföllum vegna efnahagsþrenginganna, Hjálparsími Rauða krossins 1717, heimsóknavinir, fataflokkun/söfnun sem nýtist til hjálparstarfs bæði innanlands og utan, athvörf fyrir fólk með geðraskanir, aðstoð við flóttafólk og hælisleitendur, skyndihjálp og sálrænn stuðningur og rekstur sjúkrabifreiða. Nánari upplýsingar má finna á www.redcross.is


Reykjadalur
Í Reykjadal rekur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sumarbúðir og vetrardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 5 – 23 ára. Reykjadalur hefur verið starfræktur frá árinu 1963 og þjónustar um 300 börn og ungmenni árlega. Sumarbúðirnar í Reykjadal hafa það markmið að veita börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í sumarbúðir líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra.


Ristilfélagið
Ristilfélagið hefur þann tilgang að vinna að hagsmunum þeirra sem greinst hafa með sjúkdóminn og kynningu á málefnum þeirra, og að beita sér fyrir því að hafin verði leit að ristil- og endaþarmskrabbameini á byrjunarstigi. Heimasíða félagsins er krabb.is/ristilfelagid


Rjóðrið
Rjóður er hvíldar og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn frá 0-18 ára. Markmiðið er að hvíla fjölskyldur langveikra barna og gefa börnunum bestu hjúkrun og umönnun auk góðrar afþreyingar. Nánari upplýsingar má finna á www.rjodur.is


Rótarý á Íslandi
Helsta baráttumál Rótarýhreyfingarinnar undanfarin ár er að útrýma lömunarveiki í heiminum en veikin hefur herjað á mannkynið í 5000 ár. Sjö stórir lömunarveikisfaraldrar gegu yfir Ísland frá árinu 1924 til 1955. Rótarýhreyfingin hefur þegar bjargað lífi á þriðju milljón barna í heiminum og komið í veg fyrir örkuml hátt á fimmtu milljón barna. Rótarýfélagar um allan heim hafa lagt yfir 500 milljónir dollara í verkefnið. Þar af hafa íslenskir Rótarýfélagar lagt til tæpa eina milljón dollara. Á endaspretti átaksins leita íslenskir Rótarýmenn eftir stuðningi hlaupara og skokkara og hvetja sem flesta til þess að leggja þessu góða máli lið. Nánari upplýsingar má finna á www.rotary.is


Samhljómur
Tilgangur Samhljóms er að vera styrktarfélag fyrir einstaklinga sem lent hafa í fjárhagserfiðleikum vegna utanaðkomandi áfalla, s.s. veikinda, fötlunar eða annarra ástæðna.
Samhljómur leggur áherslu á að kalla sem flesta til verka og hefur til fjölda ára notið vinnu og framlags frá fjölda einstaklinga, fyrirtækja, félaga og stofnana - meðal annars í tengslum við árlega jólatónleika.
Samljómur leggur áherslu á að veita öllu söfnunarfé eða öðrum gjöfum til fjölskyldna og einstaklinga. Stjórn eða aðrir sem vinna fyrir Samhljóm, fá ekki greitt fyrir vinnu sína (allt sjálfboðaliðastarf).
Samhljómur hefur veitt einstaklingum og fjölskyldum fjölda góðra styrkja á undanförnum árum, um er að ræða einstaklinga sem barist hafa við illvíga sjúkdóma og aðrar erfiðar aðstæður. Nánari upplýsingar má finna á http://www.nordurthing.is/is/thjonusta/styrktarsjodir/samhljomur


Samtök kvenna með Endómetríósu
Samtök kvenna með endómetríósu eru hagsmunasamtök kvenna sem greinst hafa með endómetríósu eða legslímuflakk, aðstandenda þeirra og annarra áhugasamra. Samtökin standa fyrir kaffihúsahittingum og fræðslufundum og hafa auk þess gefið út fræðslubækling um sjúkdóminn. Þá höldum við úti heimasíðu þar sem ýmsan fróðleik er að finna auk netspjalls. Við fáum fyrirspurnir frá konum og stúlkum um sjúkdóminn í gegnum tölvupóstinn okkar og við veitum þeim stuðning og leiðsögn eftir bestu getu. Eitt helsta baráttumál samtakanna er að opnuð verði göngudeild fyrir konur með endómetríósu við Kvennadeild LSH og er það ástæða þess að við skráum okkur til leiks í Reykjavíkurmaraþonið. Nánari upplýsingar má finna á www.endo.is


Samtök lungnasjúklinga
Markmið samtakana er að vinna að velferðar- og hagsmunamálum lungnasjúklinga og þeim markmiðum hyggjast samtökin ná með því að:
-  Halda uppi öflugri félagsstarfsemi.
-  Stuðla að fræðslu á lungnasjúkdómum og afleiðingum þeirra.
-  Efla forvarnarstarf.
-  Vinna að ráðgjöf og upplýsingamiðlun varðandi réttindi lungnasjúklinga.
Yfir vetrarmánuðina halda samtökin fræðslufundi þar sem fjallað er um málefni er varða sjúkdóma og almenna velferð lungnasjúklinga. Tilgangurinn er ekki síður að gefa aðstandendum breiðari, betri og vonandi nýja sýn. Heimasíða félagsins: www.lungu.is


Samtök psoriasis og exemsjúklinga
Samtök psoriasis og exemsjúklinga sakammstafað SPOEX var stofnað árið 1972 , og líknarfélag og tilgangur þess er að vinna að upplýsingum og bættum meðferðarúræður fyri húðsjúklinga, félagið rekur skrifstofu og göngudeil að Bolholti 6 í reykjavík , þangað leita sjúklingar með ljósaböðum, sjá nánar um starsfsemi félagsins á heimasíðu þess spoex.is. Heimasíða félagsins: spoex.is


Samtökin 78
Samtökin ´78 – The National Queer Organization of Iceland Samtökin ´78 eru hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, eða samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks. Markmið félagsins er að hinsegin fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í samfélaginu. Samtökin standa fyrir fræðslustarfsemi í samvinnu við ýmsa aðila, halda úti félagsstarfi fyrir ungt hinsegin fólk og bjóða upp á ráðgjöf fyrir einstaklinga og fjölskyldur varðandi hinsegin málefni. Þá reka þau menningar- og þjónustumiðstöð fyrir félagsmenn, ásamt því að halda úti veglegu bókasafni sem er öllum opið og sérhæfir sig í hinsegin bókum, tímaritum og myndefni. Þá er ótalin ýmis önnur félags-, menningar- og íþróttastarfsemi á vettvangi félagsins. Heimasíða félagsins er samtokin78.is.


SÁÁ
Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann eru landsamtök sem vinna að áfengis- og vímuefnavörnum um allt land og veita öllum landsmönnum þjónustu. Höfuðstöðvarnar eru í Reykjavík en á Akureyri er einnig miðstöð. Öllum ágóða af starfsemi samtakanna og eignum er varið til baráttunnar gegn ofnotkun vímuefna. SÁÁ leggur mesta áheslu á fjölbreytta meðferð sem byggir á nýrri vísindalegri þekkingu í læknisfræði, sálarfræði og félagsvísindum. Samtökin hafa ráðið til sín reynslumikið og vel menntað heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur að vímuefnameðferðinni sem SÁÁ telur bestu aðferðina við núverandi aðstöður til að draga úr ofnotkun vímuefna, ofbeldi og afbrotum. Samtökin leggja mikla áherslu á forvarnir og vilja taka heilstætt á vímuefnavandanum með mikilli fræðslu og skynsamlegri löggjöf og reglugerðum sem vernda þá sem minna mega sín þess að misbjóða hinum. Nánari upplýsingar má finna á www.saa.is


SEEDS
SEEDS eru sjálfboðaliðasamtök sem standa fyrir komu erlendra sjálfboðaliða til Íslands til að taka þátt í margvíslegri umhverfis- og menningartengdri starfsemi. Samtökin voru stofnuð á haustdögum árið 2005 með það að leiðarljósi að stuðla að gagnkvæmum menningarsamskiptum við störf er tengjast umhverfis- og menningarmálum. SEEDS eru íslensk samtök með alþjóðlegt umfang, rekin án hagnaðarsjónarmiða. Verkefnin eru meðal annars hreinsun strandsvæða, gróðursetning trjáa, lagning og lagfæring göngustíga, aðstoð við ýmsar hátíðir og menningarviðburða bæjarfélaga, viðhald minja og fornleifa, málun og fegrun húsa, ýmis konar landbúnaðarvinna, og aðstoð við viðhald torfbæja og fleira.


SÍBS
SÍBS er samband sjúklingafélaga á sviði brjóstholssjúkdóma, en innan vébanda sambandsins starfa aðildarfélög með á sjöunda þúsund félagsmanna. SÍBS á og rekur endurhæfingarmiðstöðina Reykjalund, sem hátt í 40 þúsund Íslendingar hafa notið góðs af, og öryrkjavinnustaðinn Múlalund. Þá styrkja þúsundir Íslendinga uppbyggingarstarf SÍBS með þátttöku í happdrætti SÍBS. Nánari upplýsingar má finna á www.sibs.is


Sjálfsbjörg

Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra eru regnhlífarsamtök hagsmunafélaga fólks með hreyfihömlun á Íslandi. Í 3. grein laga samtakanna segir að hlutverk þeirra sé m.a.; „að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra, á öllum sviðum þjóðlífsins, með því að hafa áhrif á ríkis- og sveitarstjórnir, hagsmunasamtök og einstaklinga og með því að vekja áhuga almennings á málefnum þeirra með útgáfu og kynningarstarfsemi. Um þessar mundir er unnið að undirbúningi Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar. Þar er gert ráð fyrir að hafa á einum stað upplýsingar um öll réttindi og þjónustu sem fólki með hreyfihömlun ber. Staðið verður fyrir fræðslustarfsemi og námskeiðahaldi. Miðstöðin mun starfa á landsvísu. Nánari upplýsingar má finna á www.sbh.is og www.sjalfsbjorg.is.


Sjóðurinn blind börn á Íslandi
Sjóðurinn blind börn á Íslandi var stofnaður sumarið 1992 í útvarpsþætti Jóns Axels og Gulla “Tveir með öllu”. Sjóðurinn er í vörslu Blindrafélagsins en stjórn sjóðsins sér um að úthluta styrkjum úr honum tvisvar á ári. Hlutverk sjóðsins er að styrkja blind og sjónskert börn allt að átján ára aldri til kaupa á ýmsu því sem getur orðið þeim til aukins þroska og ánægju í lífinu. Þar á meðal eru sérhönnuð leikföng, leiktæki, hljóðfæri, tölvur og annað slíkt sem opinberir aðilar styrkja ekki foreldra til kaupa á.


Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð ses
Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Markmið Sjónarhóls er að fjölskyldur barna með sérþarfir njóti jafnréttis og sambærilegra lífskjara á við aðrar fjölskyldur og búi við lífsskilyrði sem gera þeim kleift að lifa eðlilegu lífi. Mikil áhersla er lögð á að þjónustan sé aðgengileg og er ráðgjöf á vegum Sjónarhóls veitt endurgjaldslaust. Þjónusta Sjónarhóls er ætluð öllum óháð aldri barnins, einnig þeim sem eiga uppkomin börn. Það nægir að foreldrar/fjölskyldan hafi áhyggjur af líðan eða þroska barnsins til að fá ráðgjöf. Til að panta tíma hjá ráðgjafa þarf hvorki að liggja fyrir greining eða tilvísun frá fagaðilum. Þjónusta Sjónarhóls er fyrir allt landið, ráðgjafar okkar fara á fundi á landsbyggðinni ef þess er óskað og er það foreldrum einnig að kostnaðarlausu. Heimasíða: sjonarholl.net.


Slysavarnarfélag Landsbjörg
Slysavanrafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnardeilda á Íslandi. Starfsemin mið að því að koma í veg fyrir slys og bjrga mannslífum og verðmætum. Í þeim tilgangi er öflugur hópur sjálfboðaliða til taks ef út af bregður, á nóttu sem degi, allt árið um kring. Við stofnun Slysvarnarfélagsins Landsbjargar urðu til ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Ísland með um 18 þúsund félögum sem starfa í björgunarsveitum, slysavarna- og unglingadeildum. Fyrsta björgunarskipið, fyrsta björgunarþyrlan, tilkynningaskylda íslenskra skipa og Slysavarnarskóli sjómanna er aðeins örfá þeirra framfaraspora sem Slysavarnafélagið Landsbjörg og móðurfélög þess hafa stigið, landsmönnum til heilla. Nánari upplýsingar má finna á www.landsbjorg.is


SOS barnaþorpin

SOS Barnaþorpin eru alþjóðleg barnahjálparsamtök sem taka að sér munaðarlaus og yfirgefin börn í yfir hundrað löndum og búa þeim góð og ástrík heimili í barnaþorpum. Sérstaða samtakanna er fólgin í hlutverki SOS-móðurinnar sem tekur að sér nokkur börn og annast þau, sem væru þau hennar eigin, þar til þau fljúga úr hreiðrinu, tilbúin til að takast á við lífið sem sjálfstæðir einstaklingar. Framfærslukostnaður barnanna er greiddur af styrktarforeldrum og öðrum styrktaraðilum, m.a. frá Íslandi. Nánari upplýsingar má finna á www.sos.is


Sóley og félagar
Hjálparstarfið Sóley og félagar styrkja heimili fyrir varnarlaus börn í Aneho í Togo. Félagið var stofnað árið 2008 og safnar heimilisvinum á Íslandi til þess að standa undir rekstri heimilis fyrir 70 börn sem er rekið af heimamönnum. Einnig safna Sóley og félagar fé til þess að byggja á landi sem heimilinu hefur verið úthlutað í Aneho. Núverandi húsnæði er alls óviðunandi fyrir börnin sem eru á aldrinum tveggja mánaðar gömul til 16 ára. Öll börnin koma úr mjög háskalegum aðstæðum. Tveir starfsmenn frá heimilinu eru á leið til Íslands í starfsnám á Laufásborg þar sem þeir munu dvelja í hálft ár og kynna sér Hjallastefnuna. Nánari upplýsingar má finna á www.soleyogfelagar.is


Sólheimar
Sólheimar eru sjálfbært samfélag þar sem rúmlega 100 einstaklingar búa og starfa saman. Sólheimar eru stofnaðir árið 1930 af Sesselju Hreindís Sigmundsdóttur(1902-1974). Byggðahverfið Sólheimar leggur áherlsu á rækun manns og náttúru. Rekin er öflug félagsþjónusta á Sólheimum þar sem einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn er veitt tækifæri til atvinnu og starfsþjálfunar, búsetu, félags- og menningarstarfs. Sólheimar eru opið samfélag þar sem vel er tekið á mót gestum og eru alli velkomnir að Sólheimum. Nánari upplýsingar má finna á www.solheimar.is


Specialisterne á Íslandi
Specialisterne á Íslandi er sjálfseignarstofnun sem var stofnuð í ársbyrjun 2010 af Umsjónarfélagi einhverfra og sjö einstaklingum. Ekki hafa verið til sérhæfð úrræði á Íslandi við atvinnustuðningi fyrir fólk á einhverfurófinu. Of margir einstaklingar eru því atvinnulausir eða í störfum þar sem starfsgeta þeirra nýtist illa.
Specialisterne hafa vakið heimsathygli við nálgun á atvinnuþáttöku einstaklinga á einhverfurófi, en fyrirtækið byggir á danskri fyrirmynd Specialisterne í Danmörku.
Markmið Specialisterne á Íslandi. er að meta og þjálfa 14 - 18 einstaklinga á einhverfurófinu á ári og veita þeim atvinnu við fjölbreytt störf, hugbúnaðarprófanir, skráningarstörf og önnur störf þar sem krafist er nákvæmni og styrkleikar þeirra nýtast. Nánari upplýsingar má finna á www.specialisterne.is

 

SPES
Tilgangur SPES er að byggja og reka heimili fyrir foreldralaus börn. Fyrsta SPES-þorpið er risið í borginni Lomé í Afríkuríkinu Tógó. 101 barn á þar heimili í dag. Nýtt þorp hefur verið byggt í Kpalime í norðurhluta Tógó og þar búa 29 börn í dag.
Spes er hugsjónarfélag sem hefur að kjörorði "Sá sem bjargar einu barni bjargar mannkyninu". Allt stjórnarstarf er unnið í sjálfboðavinnu. Skrifstofu- og umsýslukostnaður er enginn. Nánari upplýsingar má finna á www.spes.is


Stígamót
Stígamót er fræðslu og ráðgjafamiðstöð um kynferðisofbeldi. Við bjóðum upp á ókeypis viðtöl við brotaþola naugðanna, sifjaspella, kynferðislegrar áreitni, kláms og vændis af báðum kynjum. Þjónustan er líka í boði fyrir aðstandendur brotaþola en ekki gerendur. Við bjóðum einnig upp á hópa fyrir þá sem hafa farið í viðtöl. Stígamót stundar öflugt fræðslu og forvarnarstarf og leitast við að hafa gott samband við fræðasamfélag háskólanna. Í haust mun Stígamót opna fyrsta athvarfið á Íslandi fyrir einstaklinga sem eru að brjótast út úr vændi. Fyrsti hópur Stígamóta fyrir konur sem eru að brjótast út úr vændi fór fram í vor. Nánari upplýsingar má finna á www.stigamot.is


Styrktarfélag Alþjóða geðheilbrigðisdagsins
Styrktarsjóði Alþjóða geðheilbrigðisdagsins var komið á fót til að sjá um undirbúning skemmtidagskrár sem haldin er í tilefni Alþjóða geðheilbrigðisdagsins 10. október ár hvert. Aðstandendur styrktarsjóðsins eru notendur og áhugasamir fagaðilar og er þeirra hugmynd og markmið að með þessu móti er hægt að draga úr fordómum og að það er tryggt að dagurinn verður alltaf haldin hátíðlegur. Hópurinn hefur komið upp vefsíðu sem á að halda utan um fræðslur og annað markvert er varðar geðheilbrigðismál, slóðin á hana er http://www.10okt.com/


Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
SKB var stofnað 2. september 1991 af foreldrum barna með krabbamein. Markmiðið með stofnun félagsins var m.a. að styðja við bakið á þeim og aðstandendum þeirra bæði fjárhagslega og félagslega.
Árlega greinast að meðaltali 10 - 12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Ísland er mjög framarlega í lækningum á krabbameini í börnum og njótum við þess að eiga lækna og hjúkrunarfólk sem er í góðum tengslum við samstarfsfólk sitt erlendis og því ávallt mjög upplýst um nýjustu aðferðir.
Hjá SKB er starfrækt öflugt unglingastarf, fræðslustarf og eins gefst foreldrum tækifæri á að hittast mánaðarlega. Nokkrir skipulagðir viðburðir eru yfir árið eins og til dæmis jólaball, sumarhátíð og árshátíð.
Heimasíða félagsins er www.skb.is


Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra var stofnað árið 1952. Félagið hefur frá upphafi verið frumkvöðull í þjónustu við fötluð börn og ungmenni og haft það að meginmarkmiði að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. Heimasíða slf.is.


Styrktarsjóður bráðasviðs LSH
Hlutverk sjóðsins er að styrkja starfsfólk til vísindastarfa sem og framhalds- og viðhaldsmenntunar. Auk þess er hann hugsaður til tækjakaupa fyrir starfsemi sviðsins. Bráðasvið Landspítala sinnir móttöku bráðveikra og slasaðra og er bráðamóttakan í Fossvogi ein sú stærsta í landinu. Um 100.000 einstaklingar leita til sviðsins á ári hverju sem svarar til þess að árlega komi þriðji hver Íslendingur á bráðamóttökuna í Fossvogi. Meginviðfangsefni bráðasviðs eru: þjónusta við sjúklinga, menntun og rannsóknir.


Styrktarsjóður til minningar um Siggu og Þóru Sveinbjarnardætur
Styrktar og minningarsjóður Siggu og Þóru Sveinbjarnadætra er fyrir þátttakendur í Janus endurhæfingu (www.janus.is) og er ætlaður til að styrkja einstaklinga í mikilli fjárhagslegri neyð. Janus endurhæfing er atvinnuendurhæfing. Stefna þátttakendur á vinnu eða skóla. Þeir geta fengið styrk úr sjóðnum ef opinberir aðilar eða hjálparsamtök geta ekki veitt aðstoð sína eða fyrirgreiðslu. Til að umsækjandi fái styrk er mikilvægt er að þátttakandinn sé að sinna sinni endurhæfingu. af alúð og samviskusemi. Sjóðurinn hóf formlega starfsemi í apríl 2010. Frá stofnun sjóðsins til 1.marz 2011 hefur hann veitt 14 einstaklingum styrk í 33 skipti. Tekjur sjóðsins hafa náð alls 595.000 kr. Heimasíða: janus.is.


Styrktarsjóður Susie Ruthar
Sjóðinn skipa vinir Susie Rutar Einarsdóttur sem lést sumarið 2007 af völdum eiturlyfja. Hægt er að sækja um styrkveitingu hjá sjóðnum en jafnframt hafa meðlimir hans unnið að ýmsum verkefnum sem snúa að forvörnum. Stærsta verkefni sjóðsins til þessa er gerð auglýsinga í samstarfi við Filmus undir heitinu „Það ætlar enginn að verða fíkill.“ Með auglýsingunum vill sjóðurinn leitast við að leiðrétta þær ranghugmyndir sem oft vilja verða í samfélaginu um þá sem festast í klóm eiturlyfja, en þær sýna að enginn er óhultur fyrir þeim vágesti sem eiturlyfin eru. Framundan eru ýmis brýn verkefni sem sjóðurinn mun takast á við til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn eiturlyfjum. Nánari upplýsingar má finna á www.styrktarsjodursusie.is


Sveinusjóður
Sveinusjóður var stofnaður árið 2009 til að safna fyrir nýjum íþróttaskála í Ölveri sumarbúðum KFUM og KFUK í Borgarfirði. Nafnið er dregið af Sveinbjörgu Arnmundsdóttur (Sveinu), sem helgaði líf sitt sumarbúðunum og gaf starfinu tugþúsundir vinnustunda á 68 ára starfsferli. Sveina lést í febrúar 2010.
Íþróttaskálinn sem reisa þarf mun leysa af hólmi 60 ára gamlan leikskála og mæta öllum kröfum nútímans. Slíkt hús mun aldrei rísa nema fyrir gjafir og styrki hollvina sumarbúðanna. Íþróttaskáli sem þjóna mun íslenskri æsku og kristilegu sumarbúðastarfi um langa framtíð. Nánari upplýsingar má finna á olver.is.


Tears children and youth aid
Tears children and youth aid er kristinlegt góðgerðarfélag skráð á Íslandi. Áhersla Tears children and youth aid er að veita munaðarleysingjum, ósjálfbjarga börnum, ungmennum og konum í jarðri samfélags menntun í Kenía. Eins og er styður félagið við 315 munaðaleysingja, 77 ekkjur og ungmenni í mismunandi starfsemi. Frá stofnun félagsins, fyrir fimm árum, hefur félagið bjargað mörgum stúlkum frá ungum og tilneyddum hjónaböndum. Félagið hefur nú byrjað að styrkja ekkjur fjárhagslega og það hefur einnig komið táningsmæðrum í skóla. Núna er í byggingu skólahús í Keníu sem mun sjá fyrir 700 fátækum börnum. Nánari upplýsingar má finna á www.tearschildren.org


Tölvumiðstöð fatlaðra
Tölvumiðstöð fatlaðra (TMF) er sjálfseignarstofnun með 1,5 stöðugildi. Þjónusta TMF felst m.a. í ráðgjöf sem er fólki að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin felur í sér mat á þörf fyrir sérhæfð tæki og tölvubúnað, val á búnaði, prófun og leiðsögn í notkun búnaðar fyrir einstaklinga sem ekki geta nýtt sér hefðbundin búnað eða þurfa búnað til að styrkja sig í námi eða atvinnu. Starfsemi TMF felur einnig í sér að aðstoða aðstandendur og fagfólk við að finna vélbúnað og hugbúnað sem hentar hverjum og einum. Einnig er TMF með námskeið fyrir fatlaða einstaklinga, aðstandendur og fagfólk. Nánari upplýsingar má finn á www.tmf.is 


Umhyggja
Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eru félög og hópar foreldra langveikra barna í félaginu. Helstu stefnumál Umhyggju eru m.a.: að styrkja langveik börn og fjölskyldur þeirra sem orðið hafa fyrir verulegum fjárhagsörðuleikum vegna veikindanna, að veita upplýsingar um þarfir langveikra barna, að benda stjórnvöldum á þessar þarfir og að hvetja þau til úrbóta á aðbúnaði veikra barna. Heimasíða félagsins er http://www.umhyggja.is/


Umsjónarfélag einhverfra
Umsjónarfélag einhverfra var stofnað 1977. Í félaginu er fólk með einhverfurófsraskanir, foreldrar, fagfólk og aðrir sem áhuga hafa á að beita sér fyrir bættri þjónustu við fólk með einhverfurófsraskanir. Mikil áhersla hefur verið lögð á að taka virkan þátt í mótun þjónustu fyrir þennan hóp. Félagið hefur lagt ríka áherslu á fræðslu- og kynningarstarfsemi og er vettvangur fyrir gagnkvæman stuðning aðstandenda einhverfra, enda er mjög mikilvægt að hittast, bera saman bækur sínar og veita hvert öðru stuðning. Starfandi er stuðningshópur fyrir fullorðið folk á einhverfurófi og einnig frístundahópur fyrir unglinga. Nánari upplýsingar má finna á www.einhverfa.is


UN Women á Íslandi
UN Women á Íslandi (áður UNIFEM) er þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna. UN Women vinnur að afnámi ofbeldis gegn konum, bættum mannréttindum, friði og öryggi, leiðtogaþjálfun og þátttöku kvenna í atvinnulífinu, efnahagslegri valdeflingu og þúsaldarmarkmiðum Sþ. Íslensk landsnefnd UN Women styður við starf UN Women á alþjóðavísu með fjáröflun, vitundarvakningu og réttindagæslu. Þeir fjármunir sem UN Women á Íslandi safnar, renna eingöngu í Styrktarsjóð UN Women til afnáms ofbeldis gegn konum sem er eini sjóðurinn í heiminum sem vinnur eingöngu að því að uppræta ofbeldi gegn konum og stúlkum. Nánari upplýsingar má finna á www.unwomen.is


UNICEF
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) er áhrifamesti málsvari barna í heiminum. Leiðarljós UNICEF er sú bjargfasta trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsu, menntun, jafnrétti og vernd. UNICEF stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára og sinna bæði langtímaþróunaraðstoð og neyðaraðstoð. Nánari upplýsingar má finna á www.unicef.is


Vildarbörn
Vildarbörn Icelandair er ferðasjóður fyrir langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður. Markmiðið er að gefa börnum á Íslandi og í nágrannalöndunum tækifæri til ferðalaga ásamt fjölskyldum sínum. Sjóðurinn var stofnaður af Icelandair sumardaginn fyrsta árið 2003. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag. Frá stofnun sjóðsins hafa rúmlega 280 börn og fjölskyldur þeirra farið í sína draumaferð á vegum sjóðsins. Nánari upplýsingar má finna á vef Vildarbarna Icelandair www.vildarborn.is  


Vindáshlíð
Vindáshlíð eru sumarbúðir fyrir stúlkur á aldrinum 9-17 ára. Á veturna eru einnig kvennaflokkar, mæðgnaflokkar, mæðginaflokkur og fjölskylduflokkar, ásamt nýstofnuðum lífsleiknibúðum fyrir 5. og 6.bekk grunnskóla. Í þau 64 ár sem sumarbúðirnar í Vindáshlíð hafa verið starfræktar hefur jákvæð uppbygging, framfarir og heilbrigt samfélag verið höfð að leiðarljósi. Það yrði félaginu mikið þakkarefni ef hlauparar sæu sér fært um að styrkja áframhaldandi uppbyggingu í Vindáshlíð. Nánari upplýsingar má finn á www.kfum.is


Vinir Hrings
Hringur er kátur og skemmtilegur ísbjörn sem kemur á Barnaspítala Hringsins einu sinni í viku. Hann segir sögur, spilar á gítar, syngur og styttir börnunum stundir í veikindum þeirra. Hringur hefur sýnt að hann nær til barna á spítalanum af öllum aldri og tekst að ávinna sér traust þeirra og hafa jákvæð áhrif á veru þeirra á spítalanum. Hringur er sjálfstætt verkefni sem rekið er af samtökunum Vinir Hrings. Öll framlög fara í það að börnin á spítalanum geti treyst á það að Hringur stytti þeim stundir a.m.k einu sinni í viku.


Vinir Vatnajökuls
Afla fjár til að styðja við rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf um Vatnajökulsþjóðgarð, sem stuðlar að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu þjóðgarðsins.
Stuðla að uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs í samráði við stjórn þjóðgarðsins og með samstarfi við hagsmunaaðila.
Efla fræðslu og rannsóknir í Vatnajökulsþjóðgarði og næsta umhverfi hans.
Styrkja verkefni sem stuðla að samspili Vatnajökulsþjóðgarðs og samfélagsins.
Beita áhrifum sínum til að efla samkennd um mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir nærliggjandi byggðir og alla landsmenn.
Efla skilning umheimsins á mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri náttúru hans á heimsvísu.
Nánari upplýsingar má finna á www.vinirvatnajokuls.is


Von, félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi
Að vera aðstandandi sjúklings á gjörgæsludeild er mikið álag, bæði líkamlegt sem andlegt og biðin eftir bata getur oft verið erfið og löng. Mikil óvissa getur fylgt afdrifum sjúklinga. Stuðningur við þá sem standa frammi fyrir áföllum í lífinu er því mikilvægur þáttur í starfi Vonar. Verkefni okkar eru fyrst og fremst að bæta aðstöðu skjólstæðinga okkar og gera þeim kleift að vera í sem besta mögulega umhverfi á þeirra erfiðu stundum. Við höfum m.a endurnýjað aðstandendaherbergi, látið smíða skápa með læstum hirslum, bætt hvíldar- og svefnaðstöðu, sjónvarp, tölvuaðgang, aðstöðu til að neyta matar svo dæmi séu tekin. Von veitir reglulega styrki til skjólstæðinga sinna sem oft hafa átt við alvarleg og langvarandi veikindi að etja. Korta- og minningarkortasala er til staðar.


Þroskahjálp á Suðurnesjum
Þroskahjálp á Suðurnesjum var stofnað árið 1977 af foreldrum fatlaðra barna. Félagið er hagsmunafélag fatlaðra einstaklinga á Suðurnesjum sem sér um að styðja og fræða fatlaða og aðstandendur þeirra. Heimasíða félagsins er http://www.thras.is/


Ægir Íþróttafélag fatlaðra
Þann 12. desember árið 1988 var Íþróttafélagið Ægir stofnað. Ægir, er íþróttafélag fyrir fólk með fötlun. Markmið félagsins er að sjá til þess að einstaklingar með fötlun geti stundað íþróttir sem þeim hentar og gefa þeim færi á að keppa í þeim. Íþróttafélagið Ægir heldur úti fjórum æfingum á viku samtals þar sem við bjóðum uppá boccia og sund. Hægt er að fylgjast með félaginu og fá nánari upplýsingar á heimasíðunni okkar, www.123.is/ifaegir og svo er hægt að finna okkur á facebook undir heitinu; Ægir, íþróttafélag fatlaðra.


Sendu okkur póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þú vilt skrá góðgerðafélagið þitt í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2012. Skráningu góðgerðafélaga lýkur mánudaginn 13.ágúst kl.16:00.

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði