Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade

Leiðarlýsing á 3, 5 og 10 km í Miðnæturhlaupinu PDF Prentvæn útgáfa Email
Þriðjudagur, 10. júní 2008 16:05

3 km    5 km    10 km  Í 10 km hlaupi er bláa leiðin hlaupin fyrst og síðan rauða.

Smelltu hér til að sjá kortið í fullri stærð á GoogleMaps.

Hægt er að skoða leiðirnar í GoogleEarth. Smelltu hér til að hlaða niður skjali með leiðunum, tvísmelltu svo á skjalið og þá opnast GoogleEarth. Hægt er að velja einstaka leiðir og "spila" þær.

Smelltu á Google merkið

til að sækja GoogleEarth.

 

Mynd af hlaupaleiðum

 

 Allir hefja hlaupið á Sundlaugaveginum, við hliðina á Sundlaugunum í Laugardalnum og allir enda á bílastæðinu fyrir framan sundlaugarnar.

3 km skemmtiskokk:
Hlaupið er frá Sundlaugunum í Laugardal í átt að Laugarásveginum, beygt til hægri inn á Laugarásveginn beygt niður Sunnuveg, niður Holtaveg , inn fyrsta malbikaða gangstíg til hægri sem liggur þvert á Laugardalinn, þar er hlaupið að hringtorginu við innganginn í Fjölskyldugarðinn. Þar er hlaupið inn stíginn meðfram húsdýragarðinum og áfram alla leið að bílastæði Laugardalsvallar, þar er beygt til hægri í átt að sundlaugunum þar sem endamarkið er.

5 km (tímataka):
Sama leið og í 3 km í upphafi sem er: Frá Sundlaugunum í Laugardal í átt að Laugarásveginum, beygt til hægri inn á Laugarásveginn niður Sunnuveg, niður Holtaveg, inn fyrsta malbikaða gangstíg til hægri sem liggur þvert á Laugardalinn, þar er hlaupið að hringtorginu við innganginn í Fjölskyldugarðinn. Þar er hlaupið inn stíginn meðfram húsdýragarðinum og áfram að stíg sem liggur upp að Laugardalshöll meðfram gervigrasvelli Þróttar (austan megin). Stígurinn leiðir mann upp á Engjaveg, hann farinn til vinstri (til austurs) út að enda í beygju upp að Suðurlandsbraut. Hægri beygja inn göngustíginn meðfram Suðurlandsbraut alveg að Reykjaveg, hægri beygja niður hann og í mark inn á bílastæði sundlauganna.

10 km (tímataka):
Sama leið og í 5 km hlaupinu en farnir er tveir líkir hringir. Á öðrum hring haldið áfram niður Reykjaveg án þess að fylgja 5 km hlaupurum sem beygja inn að Sundlaugum. Í stað þess er beygt inn Sundlaugarveg, Laugarásveginn og Sunnuveg eins og áður en nú ( í seinni hring) er beygt af Sunnuvegi niður á stíg til hægri og eftir honum að Holtavegi. Það sem eftir er eins og fyrri hringur: Niður Holtaveg, inn fyrsta malbikaða gangstíg til hægri sem liggur þvert á Laugardalinn, þar er hlaupið að hringtorginu við innganginn í Fjölskyldugarðinn. Þar er hlaupið inn stíginn meðfram húsdýragarðinum og áfram að stíg sem liggur upp að Laugardalshöll meðfram gervigrasvelli Þróttar (austan megin). Stígurinn upp á Engjaveg, vinstri beygja (til austurs) út að enda í beygju upp að Suðurlandsbraut. Hægri beygja inn göngustíginn meðfram Suðurlandsbraut alveg að Reykjaveg, hægri beygja niður hann og í mark inn á bílastæði sundlauganna.