Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Leiðarlýsing Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Lýsing á hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoni.
Athugið að hægt er að smella á sum götunöfnin/kennileiti til að sjá mynd.
Athugið að breytingar geta orðið á leiðum milli ára.


Götur í 3 KM:

Lækjargata, Fríkirkjuvegur, Skothúsvegur, Bjarkargata, stígur í Hljómskálagarði austur með Hringbraut, Sóleyjargata, Skothúsvegur, Tjarnargata, Kirkjustræti, Aðalstræti, Vallarstræti, Veltustund, Hafnarstræti, Tryggvagata og Lækjargata.


Götur í 10 KM:

Lækjargata, Fríkirkjuvegur, Skothúsvegur, Suðurgata, Lynghagi, Ægisíða, Nesvegur, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd, Eiðsgrandi, Ánanaust, Mýrargata, Tryggvagata og Lækjargata.


Götur í 21,1 KM:

Lækjargata, Fríkirkjuvegur, Skothúsvegur, Suðurgata, Lynghagi, Ægisíða, Nesvegur, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd, Eiðsgrandi, Ánanaust, Mýrargata, Geirsgata, Kalkofnsvegur, Sæbraut, stígur við Klettagarða, Skarfagarðar, Skarfagarðar með hafnarskanti, Korngarðar, Klettagarðar, Sundagarðar, Vatnagarðar, Sægarðar, Sæbraut, Kalkofnsvegur og Lækjargata.


Götur í 42,2 KM:

Lækjargata, Fríkirkjuvegur, Skothúsvegur, Suðurgata, Lynghagi, Ægisíða, Nesvegur, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd, Eiðsgrandi, Ánanaust, Mýrargata, Geirsgata, Kalkofnsvegur, Sæbraut, stígur við Klettagarða, Skarfagarðar, Skarfagarðar með hafnarkanti, Korngarðar, Klettagarðar, Sundagarðar, Vatnagarðar, Sægarðar, Sæbraut, Kringlumýrarbraut, stígur með Suðurlandsbraut, bílastæði/stígur (fyrrverandi Holtavegur) að Engjavegi, Engjavegur, Múlavegur, stígur umhverfis Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, Engjavegur, stígur austur með Suðurlandsbraut, göngubrú yfir Miklubraut, stígur austur með Miklubraut og undir Reykjanesbraut, göngubrú yfir vestari kvísl Elliðaáa, stígur meðfram ánni, stígur aftur undir Reykanesbraut og í vestur niður allan Fossvogsdal, brú yfir kringlumýrarbraut, stígur fram hjá Fossvogskirkjugarði, ilströndin í Nauthólsvík, Reykjavíkurflugvöllur, stíg fylgt að Faxaskjóli og síðan meðfram og inn á Ægisíðu, Nesvegur, Suðurströnd, inn á göngustíg umhverfis Bakkatjörn, framhjá Gróttu, stígur meðfram Norðurströnd, Eiðsgranda og Ánanaustum, Mýrargata, Geirsgata og Lækjargata.


Boðhlaup (42,2 KM):
Sama hlaupaleið og í maraþoni. Skiptistöðvar eru rétt aftan við tímatökumottur við 10, 20 og 30 km (sjá kort). Tíu km skiptistöðin er á Kalkofnsvegi, norðan við Seðlabanka Íslands. Tuttugu km skiptistöðin er á göngustíg norðan Suðurlandsbrautar á móts við Suðurlandsbraut 12. Þrjátíu km skiptistöðin er á göngustíg vestan við norður-suður flugbraut Reykjavíkurflugvallar (aðgengi frá Skeljanesi).


Barnahlaup
- hlaupaleið 2011 - nánar síðar fyrir 2012
Hlaupaleiðir frá Hljómskálagarðinum og nágrenni hans. Smellið hér til að skoða kort.
Græn, gul og rauð leið (700 metrar)
Sóleyjargata, Skothúsvegur, stígur í Hljómskálagarði.
Blá og appelsínugul leið (1,5 km)
Bjarkargata, Skothúsvegur, Tjarnargata, Vonarstræti, Fríkirkjuvegur, Skothúsvegur, Bjarkargata.

 

Þjónusta á leiðinni
Drykkjarstöðvar verða á u.þ.b. 4-5 KM fresti. Færanleg salerni verða nálægt 5km, 12km, 18km, 23km og 34km. Læknar og hjúkrunarlið verður til reiðu meðan á hlaupinu stendur og til aðstoðar er hlauparar koma í mark. Félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykjavík veita aðstoð á hlaupaleiðinni og við markið. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um þjónustu við hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði