Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Almennar upplýsingar
Miðlar
Kort
Úrslit
Laugavegurinn 2011
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Laugavegurinn
267 luku hlaupinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Laugardagur, 17. júlí 2010 19:21

14.Laugavegshlaupinu er lokið. 279 hlauparar fóru af stað úr Landmannalaugum í morgun kl.9 og 267 náðu að ljúka hlaupinu. Veðrið var mjög gott í dag og voru hlauparar ánægðir með færið á leiðinni. Þó var mikið sólskin á hluta leiðarinnar sem gerði hlaupurum erfitt fyrir. Sigurvegari í karlaflokki var Þorlákur Jónsson og í kvennaflokki Helen Ólafsdóttir.


Helen sló brautarmet í kvennaflokki þegar hún kom í mark á tímanum 5:21:12. Gamla metið átti Bryndís Erntsdóttir en það var 5:31:15. Þorlákur var á tímanum 4:48:01 sem er um hálftíma frá metinu sem Þorbergur Ingi Jónsson setti í hlaupinu 2009. Helgi Júlíusson sem var í öðru sæti leiddi hlaupið um tíma en missi Þorberg framúr sér á síðasta hluta leiðarinnar.


Fyrstu karlar

1. Þorlákur Jónsson 4:48:01
2. Helgi Júlíusson 4:49:43
3. Valur Þórsson 4:54:09


Fyrstu konur

1. Helen Ólafsdóttir 5:21:12
2. Hólmfríður Vala Svavarsdóttir 5:28:10
3. Sif Jónsdóttir 5:49:15


Nánari úrslit má finna hér.


Smellið hér til að skoða myndir frá hlaupinu.

 
Helen sló brautarmetið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Laugardagur, 17. júlí 2010 15:20

Helen Ólafsdóttir var fyrsta kvenna í mark í Laugavegshlaupinu 2010. Helen kom í mark á tímanum 5:21:12 sem er brautarmet. Gamla metið átti Bryndís Erntsdóttir en það var 5:31:15.

Önnur kona í mark var Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, sigurvegarinn frá því í fyrra, á tímanum 5:28:10. Hólmfríður bætti tímann sinn frá því í fyrra og met Bryndísar sem dugði þó ekki til sigurs að þessu sinni.

Sif Jónsdóttir var þriðja kona í mark á tímanum 5:49:15.

 Helen Ólafsdóttir - fyrsta kona í Laugavegshlaupinu

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 12

Kort

Myndbönd