| Laugavegurinn kosið besta hlaupið 2009 |
|
|
|
| Mánudagur, 19. apríl 2010 14:56 |
|
Á heimasíðunni hlaup.is geta hlauparar gefið hlaupunum sem þeir taka þátt í einkunn. Gefin er einkunn fyrir marga þætti sem snúa að hlaupinu m.a. hlaupaleið, brautarvörslu, bautarmerkingar, drykkjarstöðvar, tímatöku o.fl. Samtals komu 305 frá hlaupurum árið 2009. Laugavegurinn - Ultra Marathon er með hæst meðaltal allra þeirra þátta sem gefin er einkunn fyrir árið 2009 og einnig með hæstu einkunn sem hlauparar gefa þegar þeir meta hlaupið í heild sinni. Það eru því Laugavegurinn sem hlauparar hafa kosið besta hlaupið árið 2009. Smellið hér til að skoða niðurstöður í einkunnagjöf hlaupa árið 2009 á hlaup.is. |















