| Tíu dagar í Laugavegshlaup |
|
|
|
| Miðvikudagur, 07. júlí 2010 10:08 |
|
Nú þegar 10 dagar eru í Laugavegshlaup er undirbúningur í hámarki á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons. Þátttakendur fengu sendan tölvupóst í gær með spurningum um ýmislegt sem lítur að skipulagi hlaupsins. Þeir sem ekki fengu póstinn eru beðnir að hafa samband sem fyrst á tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Í póstinum var hlaupurum meðal annars gefið tækifæri á því að óska eftir að fá að vera í rás hóp með ákveðnum hlaupafélaga. Hlauparar verða ræstir í þremur ráshópum til að allir komist vel af stað og ekki verði troðningur á þröngu byrjunarsvæði hlaupsins. Til að óskir um hlaupafélaga verði teknar til greina þurfa þær að berast frá báðum aðilum. Hlaupurum stendur til boða að taka rútu á vegum skipuleggjenda frá Reykjavík í Landmannalaugar og úr Þórsmörk til Reykjavíkur. Rútuferðir þarf að greiða við afhendingu gagna. Sjá nánar um rútuferðir hér. Á leiðinni frá Reykjavík í Landmannalaugar er stoppað í Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum. Þar gefst hlaupurum tækifæri á að kaupa morgunverð á 750 kr. Áætla má að rútan sem fer frá Engjavegi 6 kl.4:30 verði í Hrauneyjum um kl.7. Allar upplýsingar um hlaupafélaga, hvort fólk vilji morgunmat eða ætli að kaupa rútuferð þurfa að berast á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. í síðasta lagi mánudaginn 12.júlí. |















