| Afhending gagna fimmtudag og föstudag |
|
|
|
| Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:08 |
|
Skráðir þátttakendur í Laugavegshlaupið 2010 þurfa að sækja skráningargögn sín næstu daga. Afhending gagna fer fram í húsnæði Íþróttabandalags Reykjavíkur og Reykjavíkurmaraþons að Engjavegi 6 (næsta hús við hliðina á Laugardalshöll). Opið er kl. 9-17 fimmtudaginn 15.júlí og föstudaginn 16. júlí. Sömu daga er einnig tekið við farangri sem flytja á að Bláfjallakvísl. Nýjustu fréttir herma að ástand hlaupaleiðarinnar sé gott. Undanfarnir dagar á Laugavegi hafa verið góðir milt veður með síðdegisskúrum. Einar Steindórsson veðurfræðingur er á vaktinni fyrir Laugavegshlaupara og er hægt að nálgast veðurspá sem hann gerði á mánudag með því að smella hér. Við afhendingu gagna á fimmtudag fá hlauparar leiðbeiningar um hvernig er best að útbúa sig miðað við veðurspá. |















