| 14. Laugavegshlaupið á morgun |
|
|
|
| Föstudagur, 16. júlí 2010 22:43 |
|
Á morgun laugardaginn 17.júlí fer Laugavegshlaupið fram. Hlaupið í ár er það fjórtánda í röðinni en frá upphafi hefur það verið haldið af Reykjavíkurmaraþoni. Alls eru 310 hlauparar skráðir til keppni í ár 83 konur og 227 karlar. Íslenskir þátttakendur eru 233 talsins og frá öðrum löndum 77. Laugavegshlaupið hefst í Landmannlaugum og lýkur í Húsadal í Þórsmörk. Eins og margir vita er Laugavegurinn er ein fjölfarnasta og vinsælasta gönguleiðin um íslensk öræfi. Venjan er að ganga leiðina á fjórum dögum en met hlauptími á þessari 55 km leið í Laugavegshlaupi er 4 klukkustundir og 20 mínútur í karlaflokki (Þorbergur Ingi Jónsson) og 5 klukkustundir og 31 mínúta í kvennaflokki (Bryndís Erntsdóttir). Hlaupið hefst við skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum, laugardaginn 17. júlí 2010 klukkan 9.00 og lýkur við skála Farfugla í Húsadal í Þórsmörk. Tímamörk eru í hlaupinu og þurfa hlauparar að vera komnir í Álftavatn (22 km) á innan við 4 klst og í Emstrur (34 km) á innan við 6 klst. Það er því aðeins fyrir vel æfða hlaupara að taka þátt í þessari miklu þolraun. Laugavegshlaupið er eitt stórt ævintýri á fjöllum. Mótshaldari þarf að vera við öllu búin þar sem allra veðra von er á hálendinu . Í ár er einum óvissuþætti bætt við til viðbótar, öskufoki. Fylgst er náið með veðurspá og lítur hún vel út eins og er. Von er á litlum sem engum vindi á hlaupaleiðinni og því ætti öskufok ekki að valda hlaupurum vandræðum. Hinsvegar er búist við því að það verði nokkuð heitt á hlaupaleiðinni á morgun og því þurfa hlauparar að huga sérstaklega vel að því að vera með nægan vökva með sér. Fréttir af gangi mála verða birtar hér á marathon.is reglulega á meðan hlaupið fer fram. |















