| 279 fóru af stað |
|
|
|
| Laugardagur, 17. júlí 2010 12:45 |
|
Laugavegshlaupið var ræst í Landmannalaugum í morgun kl.9. Hlauparar voru ræstir af stað í þremur ráshópum en als fóru 279 af stað. Fyrsti hlaupari mun vera Helgi Júlíusson en hann sást á góðu skriði við Emstrur eftir 3:17 og því ekki ólíklegt að metið sem er 4:20 verði bætt. Rúmri mínútu á eftir honum er Þorlákur Jónsson og ekki langt í þriðja mann. Frábært veður er í Þórsmörk, sól og blíða, og starfsmenn klárir í að taka á móti hlaupurum. Aðstæður munu líka vera mjög góðar á leiðinni, létt gola en ekkert öskufok.
|
















