| Vel heppnað Laugavegshlaup |
|
|
|
| Laugardagur, 16. júlí 2011 20:24 |
|
Um kl.19 í kvöld lauk 15. Laugavegshlaupinu en það hefur verið haldið árlega síðan 1997. Hlaupið sem er 55 km utanvegahlaup milli Landmannalauga og Þórsmerkur fór fram í dag í sól og blíðu. Als lögðu 306 hlauparar af stað úr Landmannalaugum í morgun og komu 289 hlauparar í mark í Þórsmörk. Þau sem ekki komu í mark þurftu ýmist að stoppa vegna meiðsla eða komu ekki á skráningarstaði innan tímamarka. Fyrst í mark voru eins og áður hefur komið fram í fréttum þau Alexandre Vuistiner og Guðbjörg Margrét Björnsdóttir. Veðrið á hlaupaleiðinni var eiginlega of gott því nokkrir hlauparar þurftu að fá aðhlynningu þegar þeir komu í mark útaf hitanum. Flestir voru þó vel á sig komnir að loknu hlaupi og nutu þess að borða góðan grillmat í góðviðrinu í Þórsmörk. Smellið hér til að skoða úrslit hlaupsins og hér til að skoða myndir. Myndir af öllum hlaupurum að koma yfir marklínuna verða birtar á vefnum á mánudagskvöld. |
















