Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Leiðarlýsing í Miðnæturhlaupinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 21. júní 2010 14:35

Allir hefja hlaupið á Sundlaugaveginum, við hliðina á Sundlaugunum í Laugardalnum og allir enda á bílastæðinu fyrir framan sundlaugarnar.


3 km skemmtiskokk

Hlaupið er frá Sundlaugunum í Laugardal í átt að Laugarásveginum, beygt til hægri inn á Laugarásveginn beygt niður Sunnuveg, niður Holtaveg , inn fyrsta malbikaða gangstíg til hægri sem liggur þvert á Laugardalinn, þar er hlaupið að hringtorginu við innganginn í Fjölskyldugarðinn. Þar er hlaupið inn stíginn meðfram húsdýragarðinum og áfram alla leið að bílastæði Laugardalsvallar, þar er beygt til hægri í átt að sundlaugunum þar sem endamarkið er.

Kort


5 km (tímataka)

Sama leið og í 3 km í upphafi sem er: Frá Sundlaugunum í Laugardal í átt að Laugarásveginum, beygt til hægri inn á Laugarásveginn niður Sunnuveg, niður Holtaveg, inn fyrsta malbikaða gangstíg til hægri sem liggur þvert á Laugardalinn, þar er hlaupið að hringtorginu við innganginn í Fjölskyldugarðinn. Þar er hlaupið inn stíginn meðfram húsdýragarðinum og áfram að stíg sem liggur upp að Laugardalshöll meðfram gervigrasvelli Þróttar (austan megin). Stígurinn leiðir mann upp á Engjaveg, hann farinn til vinstri (til austurs) út að enda í beygju upp að Suðurlandsbraut. Hægri beygja inn göngustíginn meðfram Suðurlandsbraut alveg að Reykjaveg, hægri beygja niður hann og í mark inn á bílastæði sundlauganna.

Kort


10 km (tímataka)

Sama leið og í 5 km hlaupinu en farnir er tveir líkir hringir. Á öðrum hring haldið áfram niður Reykjaveg án þess að fylgja 5 km hlaupurum sem beygja inn að Sundlaugum. Í stað þess er beygt inn Sundlaugarveg, Laugarásveginn og Sunnuveg eins og áður en nú ( í seinni hring) er beygt af Sunnuvegi niður á stíg til hægri og eftir honum að Holtavegi. Það sem eftir er eins og fyrri hringur: Niður Holtaveg, inn fyrsta malbikaða gangstíg til hægri sem liggur þvert á Laugardalinn, þar er hlaupið að hringtorginu við innganginn í Fjölskyldugarðinn. Þar er hlaupið inn stíginn meðfram húsdýragarðinum og áfram að stíg sem liggur upp að Laugardalshöll meðfram gervigrasvelli Þróttar (austan megin). Stígurinn upp á Engjaveg, vinstri beygja (til austurs) út að enda í beygju upp að Suðurlandsbraut. Hægri beygja inn göngustíginn meðfram Suðurlandsbraut alveg að Reykjaveg, hægri beygja niður hann og í mark inn á bílastæði sundlauganna.

Kort