|
Miðnæturhlaupið hefur fram á Jónsmessu í Laugardalnum um margra ára skeið. Framkvæmdin hefur verið í höndum Reykjavíkurmaraþons og frjálsíþróttafélaganna í Reykjavík. Í ár - eins og í fyrra - eru það frjálsíþróttadeildir Fjölnis og Ármanns sem sjá um framkvæmdina.
Helstu upplýsingar um hlaupið
Tímasetning: 23.júní 2010
Ræsing:
- kl. 21:50 5 km hlaup
- kl. 22:00 10 km hlaup
- kl. 22:10 3 km skemmtiskokk
Vegalengdir: 10 km og 5 km með tímatöku ásamt 3 km skemmtiskokki án tímatöku. Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga á Powerade mótaröðinni.
Staðsetning: Laugardalur í Reykjavík. Ræst á Sundlaugaveginum við hlið Laugardalslaugar.
Skráning: Forskráning á marathon.is til kl.17:00 þriðjudaginn 22.júní. Einnig skráning á hlaupdegi, 23.júní, í gamla anddyri Laugardalslaugar frá kl.16:00. Athugið að þátttökugjald í 5 km og 10 km hlaupin hækkar ef skráð er á staðnum. Lokað verður fyrir nýskráningar hálftíma fyrir hlaup. Forskráningargögn verða afhent í tjaldi utan við anddyri Laugardalslaugar á hlaupdegi frá kl.16:00. Vinsamlega sækið forskráningar eigi síðar en 20 mínútum fyrir hlaup.
Flögutímataka: Í 5 km og 10 km hlaupi verður flögutímataka. Fjöldi takmarkast við 1500 tímatökuflögur. Í fyrra seldust 1000 flögur upp rúmri klukkustund fyrir hlaup, því er mælt með forskráningu. Framkvæmdaraðilar áskilja sér rétt til að selja ósóttar forskráningar 15 mín. fyrir hlaup ef flögur seljast upp. Skila þarf tímatökuflögum í marki eftir hlaup.
Tímataka: Byssutími gildir til úrslita og röðunar í sæti.
Þátttökugjöld:
| Vegalengd |
Forskráning á marathon.is fyrir kl.17:00 22.júní |
Skráning á staðnum |
10 km m/tímatöku |
1.500 kr. |
2.000 kr. |
5 km m/tímatöku |
1.500 kr. |
2.000 kr. |
3 km skemmtiskokk án tímatöku |
1.000 kr. |
1.000 kr. |
Athugið að þátttökugjöld verða ekki endurgreidd.
Powerade drykkir og vatn verður í boði Vífilfells auk þess sem allir þátttakendur fá frítt í sund í Laugardalslaug eftir hlaup.
Verðlaun:
- Verðlaunagripir fyrir 1.-3.sæti karla og kvenna í 5 km og 10 km.
- Verðlaunapeningur fyrir 1.sæti karla og kvenna í aldursflokkum í 5 km og 10 km.
- Þátttökuverðlaun í boði fyrir alla.
- Útdráttarverðlaun
Aldursflokkar:
|
10 km hlaup
18 ára og yngri 19-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60 ára og eldri |
5 km hlaup
15 ára og yngri 16-18 ára 19-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60 ára og eldri |
Heimasíða skipuleggjenda: marathon.is
Einnig fást nánari upplýsingar um hlaupið á eftirfarandi stöðum:
Úrslit og myndir frá Miðnæturhlaupi Powerade 2009: Smellið hér til að skoða úrslit hlaupsins og hér til að skoða myndir.
|