|
Mánudagur, 17. ágúst 2009 22:01 |
|
Síðasta hlaupið á Powerade mótaröðinni þetta sumarið, Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, fer fram í miðborginni laugardaginn 22.ágúst næstkomandi. Hægt er að velja um fimm vegalengdir; maraþon, hálft maraþon, 10 km hlaup með tímatöku, skemmtiskokk og Latabæjarhlaup. Það er 10 km hlaupið sem gildir til stiga á mótaröðinni. Forskráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka lýkur á miðnætti á miðvikudag. Eftir það verður hægt að skrá sig á skráningarhátíð í Laugardalshöll en þangað þurfa allir þátttakendur að koma til að sækja keppnisgögn sín.
Efstu þrír hlaupararnir í stigakeppni Powerade mótaraðarinnar fá afhent glæsileg verðlaun í Lækjargötunni á laugardaginn. Sigurvegararnir fá flugmiða frá Iceland Express og hlauparar í öðru og þriðja sæti fá Asics hlaupaskó. Einnig eiga allir sem tekið hafa þátt í hlaupum á Powerade mótaröðinni í sumar möguleika á að vinna skemmtilegt útdráttarverðlaun frá Powerade sem einnig verða afhent í Lækjargötunni.
Þau Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Sigurður Böðvar Hansen eru með forystu á Powerade mótaröðinni fyrir síðasta hlaupið. Smellið hér til að skoða nánar stöðuna í stigakeppni mótaraðarinnar.
|
|
|
Föstudagur, 24. júlí 2009 23:42 |
|
Ármannshlaupið var endurvakið eftir nokkurra ára dvala og fór fram í Laugardalnum í gærkvöldi. Rúmlega 200 manns tóku þátt í 10 km hlaupi og skemmtiskokki. Sigurvegari í karlaflokki var Haraldur Tómas Hallgrímsson úr FH á 34:42 en í kvennaflokki sigraði Íris Anna Skúladóttir úr Fjölni á 38:20. Töluverður norðan vindur mæddi á hlaupurum á Sæbrautinni á annars skemmtilegri og hraðri braut hlaupsins. Boðið var uppá sveitakeppni í 10 km hlaupinu þar sem sveit FH sigraði og hlaut að launum málsverð frá veitingahúsinu Lauga-Ás. Sjá nánar um hlaupið á heimasíðu Ármanns armenningar.is og úrslit á hlaup.com. Ármannshlaupið var fjórða og næst síðasta hlaupið á Powerade mótaröðinni þetta sumarið. Arndís Ýr Hafþórsdóttir er eins og áður með forystu í stigakeppni kvenna en Jósep Magnússon hefur náð forystunni af Sigurði Böðvari Hansen í stigakeppni karla. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um stigakeppni Powerade mótaraðarinnar. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 8 af 13 |