Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Reykjavíkurmaraþon
Skráning í fullum gangi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2012 fer fram laugardaginn 18.ágúst. Hlaupið verður eins og undanfarin ár haldið á sama degi og Menningarnótt í Reykjavík en í ár er dagurinn einmitt afmælisdagur Reykjavíkur.


Skráning í hlaupið er nú í fullum gangi. Smelltu á rauða "skráðu þig í næsta hlaup" takkann hér til hægri á siðunni til að skrá þig í hlaupið.


Allar upplýsingar um skráningarfyrirkomulag og verð eru aðgengilegar hér á heimasíðunni. Aðstoð við skráningu er veitt í gegnum netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .


Viltu rifja upp góðar minningar úr Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2011? Smelltu þá hér til að skoða myndir frá hlaupdeginum og hér til að skoða úrslitin þín á myndrænan og skemmtilegan hátt.

 
Skráning gengur vel Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 18. maí 2012 20:45

Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer í 29.sinn þann 18.ágúst næstkomandi gengur vel. Samtals hafa nú 2.625 skráð sig til þátttöku í hlaupinu en á sama tíma í fyrra voru 1.188 búnir að skrá sig. Um er að ræða fjölgun um 121%. Hlauparar eru greinilega farnir að nýta sér í mun meira mæli en áður þann afslátt sem fæst með því að skrá sig snemma til þátttöku.

Skráðir hlauparar í dag eru 1.886 Íslendingar og 739 frá öðrum löndum. Fjölgunin er mest á meðal Íslendinga sem voru aðeins 666 búnir að skrá sig á sama tíma í fyrra en útlendingum hefur einnig fjölgað og en þeir voru 522 á sama tíma í fyrra. Erlendu þátttakendurnir koma frá 42 mismunandi þjóðlöndum og eru Bandaríkjamenn fjölmennastir eða 152 talsins og Bretar næst fjölmennastir eða 119. Þar á eftir koma Kanadamenn sem eru 82 skráðir og því næst Þjóðverjar sem eru skráðir 70 til þátttöku.

Forskráningu í hlaupið lýkur 15.ágúst kl.16:00 en einnig verður hægt að skrá sig á skráningarhátíð hlaupsins þann 17.ágúst í Laugardalshöll. Hlauparar eru hvattir til að skrá sig snemma og fá þannig afslátt af þátttökugjaldi. Næsta hækkun á gjaldi er 1.júlí næstkomandi. Smellið hér til að skoða verðskrá Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2012 og hér til að skrá hlaupara til þátttöku.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 52
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Kort