Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 17. mars 2010 14:39

Reykjavíkurmaraþonið verður 27 ára í ár og fer ört vaxandi með hverju ári. Hlaupið er haldið samhliða Menningarnótt í Reykjavík.

Helstu upplýsingar um hlaupið

Tímasetning: 21.ágúst 2010.

Vegalengdir: Maraþon, hálfmaraþon, 10 km hlaup, 42,2 km boðhlaup, 3 km skemmtiskokk ásamt Latabæjarhlaupi fyrir yngstu kynslóðina. Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga á Powerade mótaröðinni.

Staðsetning: Ræst í Lækjargötunni í miðbæ Reykjavíkur. Latabæjarhlaup fer fram í Hljómskálagarði.

Skráning: Skráning á marathon.is.

Þátttökugjald: Þátttökugjald hækkar eftir því sem nær dregur hlaupi og því borgar sig að skrá tímanlega. Nákvæma verðskrá má finna hér.

Verðlaun: Allir þátttakendur sem ljúka hlaupinu fá verðlaunapening en verðlaunafé verður veitt í karla og kvennaflokki í maraþoni og hálfmaraþoni. Auk þess eru sérverðlaun fyrir brautarmet í sömu vegalengdum. Þá fá fyrstu þrír í hverri vegalengd einnig verðlaun auk fyrstu þriggja í hverjum aldursflokki. Sjá nánar með því að smella hér.

Heimasíða hlaupsins: www.marathon.is/reykjavikurmaraton


Úrslit Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2009: marathon.is

 
Borði
Borði
Borði
Borði