Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Viltu bæta hlaupatímann þinn? Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 26. október 2009 11:34

Hættu að skokka og byrjaðu að hlaupa!

Ertu að skokka en vilt hlaupa eða hleypurðu og vilt hlaupa hraðar?  Vandræðum með að setja upp æfingar?  Hvað sem þú æfir mikið, bætirðu aldrei tímann þinn?  Orðin/n þreytt/ur á að árangurinn skili sér ekki? Viltu kunna að skipuleggja hlaupin þín, setja upp æfingarnar rétt,  læra fjölbreytni í æfingum og bæta tímann þinn?

Ef svarið er þá ættirðu að lesa áfram.


Gríðarleg vakning hefur verið í hlaupum á meðal almennings undanfarin ár og fólk er byrjað að leggja meira og meira uppúr hlaupum í sinni heilsurækt sem í mörgum tilfellum endar sem brennandi áhugamál þar sem fólk keppist við að bæta tíma sína. En hvernig á maður að hlaupa til að bæta tímann sinn? Er bara nóg að skokka? Gæti verið að það skipti máli hvernig maður skokkar/hleypur?
Miðvikudaginn 18. nóvember klukkan 19.30 mun Sigurbjörn Árni Arngrímsson (Bjössi) dósent í íþróttafræði við Íþróttafræðasetur Háskóla Íslands og hlaupari mikill svara þessum spurningum á námskeiði sem haldið verður hjá Keili á Ásbrú (Reykjanesbæ). Bjössi mun einblína á fjölbreytni í æfingum og uppsetningu á þjálfun þannig að hinn almenni hlaupari fái sem mest úr æfingatíma sínum. Fjallað verður um hvernig fólk getur metið ákefð æfinga sinna og farið verður yfir undirstöðuatriði hlaupaárangurs.
Í framhaldi af fyrirlestri Bjössa mun Eva Einarsdóttir fjalla stuttlega um þá hugarfarsbreytingu sem þarf að eiga sér stað þegar fólk ákveður að gera hlaupin/skokkin sín að markvissri keppni við tíma. Í lokin munu bæði Sigurbjörn og Eva sitja fyrir svörum við spurningum úr sal.

Námskeiðið er ætlað öllum almennum hlaupurum sem hlaupa sér til kapps og gamans. Verð á námskeiði er kr. 3.900. Nánari upplýsingar hér.

 
Borði
Borði
Borði

Kort