Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 07. desember 2009 14:47

Þrátt fyrir að rúmir átta mánuðir séu í næsta Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka er undirbúningur fyrir hlaupið löngu hafin. Það er að mörgu að hyggja fyrir stóran viðburð sem þennan og margt sem þarf að undirbúa með löngum fyrirvara.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 fer fram laugardaginn 21.ágúst. Hlaupið verður frá miðbæ Reykjavíkur eins og undanfarin 26 ár. Skráning í hlaupið opnar í janúar. Verðskrá er nú þegar hægt að nálgast hér á heimasíðunni.

Undanfarin ár hefur verið boðið uppá fimm vegalengdir í Reykjavíkurmaraþoninu, maraþon, hálfmaraþon, 10 km hlaup, 3 km skemmtiskokk og Latabæjarhlaup fyrir yngstu kynslóðina. Í hlaupinu 2010 verður einni vegalengd bætt við, 42,2 km boðhlaupi. Í raun er ekki um nýja vegalengd að ræða heldur nýja keppnisgrein því hlaupin er sama leið og í maraþoninu en tveir til fjórir geta skipt leiðinni á milli sín. Skiptistöðvar verða eftir 10 km, 20 km og 30 km.

 
Borði
Borði
Borði

Kort