Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Skráning hafin Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 31. janúar 2010 00:00

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 fer fram laugardaginn 21.ágúst næstkomandi. Skráning í hlaupið er hafin, smelltu hér til að skrá þig.

Líkt og undanfarin ár verður 3 km skemmtiskokk einn af vegalengdunum í Reykjavíkurmaraþoninu 2010 auk þess sem Latabæjarhlaupið fyrir yngstu kynslóðina verður á sínum stað. Boðið er upp fjórar keppnisgreinar í hlaupinu; maraþon (42,2 km), hálfmaraþon (21,1 km), 10 km hlaup og boðhlaup (42,2 km). Boðhlaupið er ný keppnisgrein í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka en hlaupið á maraþonbrautinni og því er vegalengdin 42,2 km eins og maraþonið. Tveir til fjórir skipta á milli sín hlaupaleiðinni og verða skiptistöðvar eftir 10 km, 20 km og 30 km. Ef fjórir hlaupa saman hlaupa þrír hlauparar 10 km og einn 12,2 km. Smelltu hér til að skoða nánari upplýsingar um boðhlaupið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010.

Þátttökugjaldið hækkar eftir því sem nær dregur hlaupi og því eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst. Smelltu hér til að skoða verðskrá fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010.

 
Borði
Borði
Borði

Kort