Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Kynningarfundur fyrir góðgerðafélög Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 15. febrúar 2010 00:08

Fimmtudaginn 18.febrúar kl. 17:00 eru góðgerðarfélög sem hafa áhuga á að taka þátt í áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 boðuð til kynningarfundar. Fundurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, E sal á 2. hæð. Íþróttamiðstöðin er til húsa að Engjavegi 6, húsið sem er næst Laugardalshöllinni með inngang (aðalinngangur) fjærst Laugardalshöll.

Á kynningafundinum verður meðal annars farið yfir hvernig hægt er að skrá áheit, hvetja fólk til að heita á hlaupara, fylgjast með söfnun áheita o.fl. Allir fulltrúar góðgerðafélaga og samstarfsaðilar hlaupsins eru velkomnir og vonumst við til að sjá sem flesta sem hafa áhuga á að taka þátt í áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 21.ágúst 2010.

 
Borði
Borði
Borði

Kort