Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Skráning gengur vel Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 02. júlí 2010 00:00

Nú þegar 50 dagar eru í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 hafa 1830 manns skráð sig í hlaupið. Þar af eru 1286 íslendingar og 544 frá öðrum löndum. Íslendingar eru mun fyrr til að skrá sig í hlaupið í ár heldur en í fyrra en aðeins 960 voru búnir að skrá sig á sama tíma árið 2009. Skráning erlendra þátttakenda hefur verið dræmari í ár og datt nánast niður um það leiti sem eldgos spúði ösku um allan heim. 650 erlendir hlauparar voru búnir að skrá sig til þátttöku á sama tíma í fyrra.

Forskráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 verður opin hér á marathon.is til og með 18.ágúst. Aðeins er hægt að greiða með kreditkorti þegar skráð er í gegnum vefinn. Þau sem ekki hafa kreditkort geta sent póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og gengið frá skráningu með því að millifæra inná reikning Reykjavíkurmaraþons.

Meiri áhugi virðist vera á góðgerðamálum tengdum Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár heldur en í fyrra því mun fleiri hafa skráð sig sem góðgerðahlaupara ef borinn er saman sami tími og árið 2009. Þeir sem merkja sig góðgerðafélagi við skráningu geta hvatt vini og vandamenn til að heita á sig. Eftir hlaupið rennur upphæðin til góðgerðafélagsins sem viðkomandi hlaupari valdi.

 
Borði
Borði
Borði

Kort