| Íslandsmeistaramót í maraþoni |
|
|
|
| Fimmtudagur, 08. júlí 2010 11:38 |
|
Allir íslenskir hlauparar sem skrá sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 verða sjálfkrafa þátttakendur í Íslandsmeistaramótinu í maraþoni sem haldið er samhliða hlaupinu. Fyrsta íslenska konan og fyrsti íslenski karlinn sem koma í mark í maraþoninu verða krýndir Íslandsmeistarar í maraþoni. Það er Frjálsíþróttasamband Íslands sem krýnir sigurvegarana en hlauparar í öðru og þriðja sæti fá einnig verðlaun frá Frjálsíþróttasambandinu. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2009 var einnig Íslandsmeistaramót í maraþoni. Þá sigruðu þau Valur Þórsson og Veronika Sigríður Bjarnadóttir. Nánar um verðlaun í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 má finna hér. |



















